Sigurvin Ólafsson hættur hjá FH

Miðjumaðurinn Sigurvin Ólafsson er hættur hjá bikarmeisturum FH og er ekki búinn að ákveða hvort hann muni leika knattspyrnu á næstu leiktíð. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

,,Ég ætla bara að taka mér góða pásu,” sagði Sigurvin í samtali við Fótbolta.net í dag og aðspurður hvort hann spili knattspyrnu næsta sumar bætti hann við: ,,Það þarf ekkert að vera en það gæti líka alveg gerst. Ég ætla bara að sjá til því þannig séð hef ég alveg nægan tíma, þetta byrjar ekki fyrr en í maí.” ,,Ég er bara búinn að missa aðeins áhugann á þessu og er að bíða eftir að hann komi aftur. Það er mikil vinna og tími sem fer í þetta og það eru komin önnur atriði í lífi mínu sem þurfa að fá smá forgang. Bæði starf og fjölskylda. Ég er lögfræðingur og það er nóg að gera þar.”

Sigurvin sem er Vestmannaeyingur hefur leikið með Fram, KR, ÍBV og FH hér á landi og hefur orðið Íslandsmeistari með þremur síðustu liðunum. En sér hann fram á að spila í efstu deild áfram ef hann heldur áfram?

,,Það er allt mögulegt,” svaraði Sigurvin. ,,Ef ég verð duglegur að halda mér í formi þá get ég alveg spilað áfram í efstu deild en ég ætla ekki að spila í efstu deild ef ég lít út eins og jólasveinn á vellinum. Þetta kemur bara allt í ljós, ég bíð bara rólegur.”

Sigurvin sem er 31 árs gamall kom til FH fyrir tímabilið 2006 frá KR og á tveimur tímabilum spilaði hann 23 leiki með liðinu og skoraði í þeim fjögur mörk. Við spurðum hann afhverju hann hafi tekið ákvörðun um að hætta hjá FH.

,,Þeir geta náttúrulega ekki beðið endalaust,” svaraði hann. ,,Ég vil vera heiðarlegur við FH-inga, þeir eru topplið og með topp mannskap og þeir geta ekki beðið endalaust eftir að ég ákveði mig eða fái aftur áhugann á þessu.”

,,Samningurinn rennur út í þessum mánuði og þeir buðu mér nýjan samning sem ég gat ekki með góðu móti skrifað undir því það hefði hreinlega verið óheiðarlegt. Að skrifa undir eitthvað og lofa sig í einhverja vinnu sem maður hefur svo ekki áhuga á.”

,,Ég skil mjög sáttur við FH og þeir vonandi sáttir við mig. Það er ekki hægt að segja annað, það komu fullt af bikurum, Íslandsmeistaratitill, bikarmeistaratitill, tveir deildabikarmeistarar og áfram í Evrópukeppninni tvisvar. Þetta var ævintýri sem var skemmtilegt.”

Sigurvin verður samningslaus við FH nú um áramótin og því hafa félög mátt hafa samband við hann síðan í haust. ,,Það er eitthvað búið að hringja en ég hef alltaf ýtt þessu frá mér því ég er ekki reiðubúinn að taka neina ákvörðun. Ég mun gera það áfram. Ég sé til með hækkandi sól hvort ég get farið í eitthvað annað lið,” sagði hann.

Við spurðum hann að lokum hvort staðan myndi ekki breytast fljótt þegar grasið fer að verða grænt í vor og hann sagðist enn bíða eftir að fá fiðringinn.

,,Þetta gerist alltaf á haustin hjá manni að maður nennir ekki í fótbolta eftir að hafa verið að þessu í tíu mánuði en svo fær maður yfirleitt fiðringinn aftur í nóvember-desember. Hann er bara ekki kominn ennþá hjá mér en það getur vel verið að hann komi aftur í febrúar-mars. Þá kannski geri ég eitthvað, en ég get ekki skrifað uppá og lofað mér í vinnu eins og staðan er núna svo ég varð að hafna samningi við FH.”

Nýjustu fréttir

Kjarnaboranir á Eiðinu og uppbygging Laxeyjar
Héðinn Þorsteinsson – Björt framtíð fjarskipta í Eyjum
Kjarnaborinn laus – borun hafin á ný
Vöndum okkur! 
Ósigraðir Blikar koma til Eyja – ÍBV leitar að fyrsta sigrinum
Valur vann ÍBV í fyrsta leik í úrslitaeinvíginu
The Puffin Run fór fram í dag í blíðskaparveðri
Ástríðan fyrir trérennslu kviknaði í faraldrinum
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.