
Það er alltaf tilhlökkunarefni þegar rithöfundar leggja leið sína til Vestmannaeyja á Safnahelgi og kynna nýútkomnar bækur sínar. Þetta er kærkomin tilbreyting sem Eyjafólk kann vel að meta. Að þessu sinni mættu fjórir höfundar til leiks og bækurnar voru jafnólíkar og þær voru margar. Þar komu við sögu glæpir og gömul leyndarmál, sorgir og uppgjör við fortíðina og loks kostulegar sögur af mannlífinu á Keflavíkurflugvelli á tímum bandaríska varnarliðsins.
Góð mæting var á upplesturinn í Sagnheimum laugardaginn þar sem þau Margrét S. Höskuldsdóttir, Steindór Ívarsson, Þorgrímur Þráinsson og Ásmundur Friðriksson kynntu nýjustu bækur sínar og gáfu gestum innsýn í ólíka söguheima. Úr varð skemmtileg bókmenntastund sem gestir kunnu vel að meta.
Margrét S. Höskuldsdóttir reið á vaðið með glæpasöguna Eldur í öskunni leynist, sem hefur sérstaka tengingu við Vestmannaeyjar. Sagan hefst í Heimaeyjargosinu 1973 þegar þrjú systkini frá Eyjum eru send í fóstur vestur á firði. Fimmtíu árum síðar finnast mannabein á Dynjandisheiði og gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið.
Margrét hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, árið 2025 fyrir bókina Lokar augum blám. Í nýjustu bókinni fléttar hún saman sögu Vestmannaeyja og Vestfjarða með spennandi hætti.
Steindór Ívarsson hélt spennunni áfram með Ótta, fjórðu glæpasögunni um rannsóknarlögreglukonuna Rúnu. Þar segir frá ungri konu sem finnst látin við fjölbýlishús í Reykjavík. Rannsóknin leiðir lögregluna inn í lokaðan trúarsöfnuð þar sem óhugnanleg leyndarmál koma í ljós. Steindór hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir spennandi glæpasögur og sterkar persónulýsingar.
Þorgrímur Þráinsson leiddi gesti inn í annan heim með skáldsögunni Ég kom til að gráta. Þar segir frá manni á miðjum aldri sem heldur til Ólafsvíkur til að gera upp fortíðina. Sagan fjallar um sorg, áföll, fyrirgefningu og tilfinningar sem karlmenn hafa oft átt erfitt með að tjá.
Þorgrím þarf vart að kynna fyrir Eyjamönnum, enda einn þekktasti rithöfundur landsins og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu. Nýjasta bókin sýnir alvarlegri hlið á höfundinum sem hefur í áratugi haft lag á að ná til lesenda á öllum aldri.
Ásmundur Friðriksson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður rak síðan endahnútinn á dagskrána með bókinni Sögur af Vellinum. Þar rifjar hann upp mannlífið á Keflavíkurflugvelli á tímum bandaríska varnarliðsins, frá 1952 til 2006.
Í bókinni eru meðal annars viðtöl við tuttugu einstaklinga og fjöldi litríkra frásagna. Þar kennir ýmissa grasa, allt frá smygli og skrautlegum uppátækjum til samskipta Íslendinga og Bandaríkjamanna. Sögurnar eru margar hverjar með ólíkindum en jafnframt merkilegar heimildir um sérstætt samfélag.
Ásmundur er Eyjamaður og efur meðal annars skrifað bókina Strand í gini gígsins um Surtseyjargosið og mannlífið í Vestmannaeyjum.
Upplesturinn var ánægjulegur liður í fjölbreyttri dagskrá Safnahelgarinnar. Höfundarnir fjórir buðu upp á ólíkar frásagnir sem sýndu vel breiddina í íslenskri bókaútgáfu.
Gestir voru þakklátir fyrir heimsóknina og það er ljóst að bókmenntir eiga sinn sess á Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Það er enda fátt notalegra á haustdegi en að hlýða á góða frásögn og fá um leið hugmynd að næstu bók á náttborðið. Eftir þessa stund í Sagnheimum höfðu gestir úr nógu að velja.




