Svellkaldir Skagamenn unnu 3:2

Knattspyrnulið ÍBV lék æfingaleik gegn úrvalsdeildarliði ÍA á laugardag en leikurinn fór fram í hinni glæsilegu knattspyrnuhöll þeirra Skagamanna, Akraneshöll. Knattspyrnuhöllin hefur allt það sem góð knattspyrnuhús þurfa að bera fyrir utan upphitun enda var 8 stiga frost þegar leikurinn fór fram, en þá hafði hlýnað um fjórar gráður eftir að ljósin voru kveikt. (meira…)

Veður- og um­hverfismælingastöð í Surtsey

Á fundi bæjarráðs í síðustu viku lá meðal annars fyrir erindi frá Náttúrufræðistofnun Íslands um að komið verði upp veður- og um­hverfismælingastöð í Surtsey. Erindið er dagsett 10. janúar sl. þar sem óskað er eftir aðkomu Vest­mannaeyjabæjar að veður- og umhverfismælingastöð í Surtsey til uppsetningar árið 2008. (meira…)

Eyjamenn eiga enn góða möguleika á sæti í úrslitum

Körfuknattleikslið ÍBV vann góðan útisigur á laugardaginn þegar liðið lagði KKF Þóri að velli 79:95. Eyjamenn eiga því enn góðan möguleika á að komast í úrslitakeppni 2. deildar en ÍBV er í þriðja sæti B-riðils með tíu stig, jafn mörg stig og Álftanes sem er í öðru sæti og tveimur stigum á eftir Mostra sem […]

Sjúkraflugið

Enn og aftur hafa embættismenn í Reykjavík ákveðið að skerða þjónustu sem við eigum rétt á. Líklega út af því að það leit betur út í excel skjalinu. Það var hægt að spara einhverjar krónur á því að gambla” með sjúkraflugið. Þvílík endemis vitleysa. Hver ber ábyrgðina? Ef svo illa vill til að einhver deyr […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.