Saumað að sölumönnum

Lögreglan á Selfossi þusti inn á Hótel Selfoss í gær, leysti upp sölufund og leiddi sölumennina á brott til yfirheyrslu. Þeir höfðu auglýst ódýrar saumavélar til sölu. Þrír sölumenn komu hingað til lands á dögunum á vegum bresks fyrirtækis, og auglýstu ítalskar Necchi saumavélar til sölu á tæpar 19.000 krónur. (meira…)

Hitaveita Hraungerðishrepps

Laugardaginn 8. mars var viðbótartenging við Hitaveitu Hraungerðishrepps formlega tekin í notkun að viðstöddum fjölda gesta í blíðskaparveðri. Það var Stefán Guðmundsson í Túni sem hleypti vatninu á. Framkvæmdum lauk um mánðarmótin nóvember-desember og þá var nánast lokið við að tengja þá bæji úr fyrrum Hraungerðishreppi sem upphaflega stóð til að tengja við Hitaveituna. (meira…)

Glófaxafjölskyldan kaupir hlut í fyrirtækinu

Glófaxafjölskyldan hefur keypt hlut í Eyjatölvum en fyrr í þessum mánuði seldi Jóhann Guðmundsson hlut sinn í Eyjatölvum. Frá þessu var gengið í dag þegar Guðbjörn Guðmundsson í Eyjatölvum og Bergvin Oddsson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri á Glófaxa handsöluðu samninginn. Haraldur, sonur Bergvins mun hefja störf í Eyjatölvum þegar hann lýkur námi sínu við Háskólann […]

Komið upp ósætti um Landeyjahöfn?

Samkvæmt upplýsingum sem Fréttir telja áreiðanlegar er kom­inn upp ágreinur um Land­eyjafjöruhöfn milli Vestmanna­eyja­bæjar og Rangárþings Eystra. Ákveðið hafði verið að höfnin yrði 60% í eigu Eyjamanna og 40% í eigu Rangárþings. Ekki virðast Rangæingar hafa sætt sig við þessa niðurstöðu og var málið komið í uppnám. Ekki náðist í nokkurn í gær til að […]

Stofnbréf byrjuð að seljast

Tillaga um að auka stofnfé um allt að milljarð var samþykkt á stofnfjárfundi Sparisjóðs Vestmanna­eyja í október á síðasta ári. Sjötíu stofnfjáreigendur áttu for­kaups­rétt að stofnfjáraukningunni en samkvæmt samþykktum Spari­sjóðsins takmarkast eignarhlutur einstaks stofnfjáreiganda við 5% hámark af heildarstofnfé. (meira…)

Tónlist og myndasýning á kynningarfundi menningarnefndar

Í dag fimmtudaginn 13. mars klukkan 18:00 býður menningarnefnd Ölfuss til opins kynningar- og spjallfundar á Bæjarbókasafni Ölfuss. Kynnt verður ársskýrsla menningarsviðs Ölfuss ásamt stefnu sveitarfélagsins í menningarmálum, sýndar verða myndir sem teknar voru við hina ýmsu viðburði á síðustu mánuðum og sagt frá þeim verkefnum sem framundan eru, m.a. aðkoma menningarnefndar að Unglingalandsmóti, skráning […]

15. mars – Góugleði á Draugabarnum

Laugardaginn 15. mars verður haldin Góugleði á Draugabarnum Stokkseyri, en Góa er næst seinasti mánuður vetrarmisseris samkvæmt hinu forníslenska tímatali. Húsið opnar kl 23:00 Leikfélag FSU sýnir brot úr ófrumsýndum rokksöngleik kl 23:30 Hljómsveitin Karma mun halda uppi gleðinni langt fram á nótt. (meira…)

Misvirkir viðmælendur

RÁÐHERRAR mældust mjög mismunandi virkir sem viðmælendur í umfjöllun um þá eða þeirra ráðuneyti í ljósvakafréttum frá því ríkisstjórnin var mynduð í maí sl. til áramóta. Þetta kemur fram í úttekt Creditinfo Ísland á hve oft ráðherrar birtast sem viðmælendur í ljósvakafréttum. Mælingin kallast Ráðherrapúlsinn og eru niðurstöður birtar tvisvar á ári. Á umræddu tímabili […]

Vegagerð við Kögunarhól

VEGFARENDUR sem farið hafa framhjá Kögunarhóli undir Ingólfsfjalli undanfarið hafa sumir hverjir undrast mikið jarðrask sem blasir við frá Suðurlandsvegi. Maður sem hafði samband við Morgunblaðið velti því fyrir sér hvort þarna ætti að hefja námugröft. (meira…)

Fegnir selskapnum

Tveir selir, líklega landselir, gerðu sig heimakomna á flotbryggjunum neðan við Kaffi Kró í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi. Selirnir voru á sitthvorri bryggjunni og létu mannaferðir um bryggjurnar ekki trufla sig mikið. Reglulega kemur það fyrir að selir flatmagi á flotbryggjunum í Vestmannaeyjahöfn en öllu sjaldgæfara er að tveir séu á sama tíma á bryggjunum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.