�?inghelgi verndar ekki Árna

„Við erum að vinna að kærunni og hún kemur mjög fljótlega, segir Karl Axelsson hæstarréttarlögmaður. Karl er lögmaður Gunnars Gunnarssonar aðstoðarvegamálastjóra, sem lýsti því yfir að hann ætli að kæra Árna Johnsen, þingmann Sjálfstæðisflokksins, fyrir ærumeiðandi ummæli um sig sem opinberan starfsmann í grein í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag.” (meira…)

Hvalreki við Knarrarósvita

Vigfús Eyjólfsson fuglamerkingarmaður fann andarnefju (Hyperoodon ampullatus), í fjörunni fyrir sunnan Knarrarósvita austan við Stokkseyri rétt fyrir helgi. Á vefnum stokkseyri.is kemur fram að búið er að tilkynna fundinn til Hafrannsóknarstofnunar, en stofnunin tekur á móti tilkynningum vegna hvalreka og annast rannsóknir á hræjum ef þurfa þykir. (meira…)

Innbrot í Gaulverjabæjarskóla

Tvívegis var brotist inn í Gaulverjabæjarskóla í Flóa. Í fyrra skiptið var það á tímabilinu 18 til 20 apríl og þá var stolið tveimur Philips hátölurum og magnara. Aðfaranótt sumardagsins fyrsta var aftur brotist inn í skólann. Í það skiptið var stolið Dell fartölvu og tveir geislaspilarar. Innbrotið er óupplýst. (meira…)

Brotist inn í tvö veiðihús

Um helgina var brotist inn í tvö veiðihús við Hlíðarvatn í Selvogi. Úr öðru húsinu var tekið duftslökkvitæki og sprautað úr því innandyra í hinu húsinu. Engu var stolið úr húsunum en nokkur eignaspjöll hlutust við innbrotin og svo vegna slökkviduftsins. (meira…)

Gunnar Heiðar skoraði í gærkvöldi

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eitt af mörkum Vålerenga sem vann Viking frá Stafangri 3-2 í kvöld. Þetta var síðasti leikur fimmtu umferðar norsku deildarinnar. Gunnar var í byrjunarliðinu en var tekinn af velli um miðjan seinni hálfleik. Stabæk hefur ellefu stig á toppi deildarinnar en Vålerenga og Fredrikstad koma stigi á eftir. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.