Tæplega 30 milljónir söfnuðust

Keppninni Mottumars lauk með formlegum hætti nú rétt fyrir klukkan 20:00 í kvöld. Keppnin fór þannig fram að karlmenn, og reyndar einstaka konur líka, söfnuðu mottum eða yfirvaraskeggi og söfnuðu um leið áheitum sem renna óskert til Krabbameinsfélagsins. Alls söfnuðust 28.795.087 kr. í söfnuninni en Eyjamenn létu sitt ekki eftir liggja og söfnuðu rúmri hálfri […]

Handaflsagðgerðir ráðherra kosta Eyjamenn 8.000 tonn af makríl

Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti í dag, með sex atkvæðum af sjö, harðorða ályktun þar sem nýrri reglugerð vegna makrílveiða er mótmælt. „Bæjarstjórn Vestmannaeyja lýsir yfir andstöðu við þau vinnubrögð sem voru viðhöfð í aðdraganda nýrrar reglugerðar sjávarútvegsráðherra um veiðar á makríl. Fyrir liggur að ef ekki hefði komið til breytinga á úthlutunarreglum hefðu útgerðir í Vestmannaeyjum […]

Eyjamenn skoruðu níu mörk á Spáni

ÍBV er þessa dagana í æfingaferð á Spáni en liðið burstaði lið að nafni Candia 9-0 í æfingaleik í gær. ÍBV fékk ekki mikla mótspyrnu en þó meiri en í æfingaferð í fyrra þegar liðið burstaði Ontenyente 16-0. Eyjamenn eru með fjóra leikmenn á reynslu þessa dagana en einn þeirra, Jordan Connerton, skoraði þrennu í […]

ÍBV og Vodafone taka upp samstarf

ÍBV Íþróttafélag og Vodafone skrifuðu í dag undir samstarfssamning sín á milli. Vodafone mun vera sýnilegt hjá félaginu, bæði í blaðaútgáfu á vegum félagsins og við helstu íþróttaviðburði félagsins. ÍBV mun einnig nýta sér úrvals internet og símaþjónustu Vodafone sem þjónustuð er af Eyjatölvum hér í bæ. (meira…)

Vatn flæðir um rennibrautirnar

Nú hafa rennibrautir á útisvæði sundlaugar verið opnar. Vorið er komið með hækkandi hitastigi og því líklegt að hægt verði að hafa brautirnar opnar fram á haustið. Vestmannaeyingar eru hvattir til að kíkja í sund og njóta samverustunda í heitum pottum á meðan börnin eru við leik. (meira…)

Tíu ára markaðsvinna í súginn

„Við vorum í tíu ár að markaðssetja okkur í jaðarferðaþjónustu og feng­um hópa fyrir og eftir sumarið til að lengja tímabilið. Við fengum breska skólahópa sem komu í lok febrúar, mars og apríl og svo eftir sumarið í október og nóvember. Í fyrra voru fjörutíu hópar bókaðir en enginn í ár – þeir eru uppi […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.