Heimaey var það

Heimaey VE 1 heitir nýtt og glæsilegt uppsjávarskip Ísfélagsins en skipið var sjósett í dag og gefið nafn í borginni Talcahuano í Chile. Í fréttatilkynningu frá Ísfélaginu kemur fram að skipið sé af nýrri kynslóð uppsjávarskipa, 71,1 metra langt og 14,40 metra breitt. Burðageta þess er 2.000 tonn í 10 tönkum, sem eru með öflugri […]

Tekjuskerðing fyrir sjómenn og alla Eyjamenn

„Okkur líst ekki á þetta,“ sagði Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns þegar hann var spurður út í frumvörp ríkisstjórnarinnar um stjórn fiskveiða. „Ég sá frumvörpin fyrst sl. föstu­dag en get lítið tjáð mig um efnisatriði því það ríkir trúnaður á þessu ennþá. En það er verið að flækja málin ennþá meira en var og reglugerðarvaldið […]

Enn rekur Eimskip starfsfólk sitt á Herjólfi

Skemmst er þess að minnast, þegar Eimskip, fyrr í vetur, sagði upp þremur þernum á Herjólfi. Í Fréttum sem koma út í dag er bréf frá tveimur konum, Berglindi Jóhannsdóttur og Dagrúnu Sigurgeirsdóttur, sem störfuðu í afgreiðslu Herjólfs í Eyjum, sem nú hafa einnig verið reknar. Þær fara yfir samskipti sín við stjórnendur og starf […]

Opin fundur þingmanna Samfylkingarinnar í kvöld

Opinn fundur Samfylkingarþingmanna í Alþýðuhúsinu í kvöld Þingmenn Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, Björgvin G. Sigurðsson, Oddný G. Harðardóttir og Róbert Marshalli, hafa undanfarnar vikur verið á fundaferð um kjördæmið þar sem þau hlusta á viðhorf íbúa og kynna framtíðarsýn jafnaðarmanna á sóknarfærin. Sjávarútvegsmál, atvinnusköpun, auðlindanýting, samningsmarkmiðin við ESB og hvernig útrýma eigi fátækragildrum og efla menntun […]

Frumsýnir mynd um grálúðuveiðar á Sjómannadag

Peyjarnir á Vestmannaeyja VE 444 og Bergey VE 544 hafa verið að prófa tvílemba grálúðuveiðar um 50 sjómílur austur af Íslandi. Á Vestmannaey er Elvar Aron Björnsson að leysa af en hann hefur notað tækifærið og búið til stuttmynd um þetta ævintýri. Myndin verður frumsýnd á Sjómannadag 4. júní upp í Höll en hér að […]

Hermann fékk tilboð frá Portsmouth

„Ég fékk tilboð í hendurnar frá félaginu um helgina og ég er svona að vega það og meta í rólegheitunum og reikna með að setjast niður með mönnum frá félaginu á næstu dögum. Minn fyrsti kostur er að vera hér áfram og ég er bara bjartsýnn á að svo verði,“ sagði Hermann Hreiðarsson leikmaður enska […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.