Verður Ráðhús Vestmannaeyja friðlýst

Á fundi húsafriðunarnefndar ríkisins í haust var samþykkt að fela forstöðumanni nefndarinnar, Pétri H. Ármannssyni, að undirbúa friðun gamla sjúkrahússins í Eyjum sem nú er Ráðhús Vestmannaeyja. Segir í samþykktinni að stefnt skuli að því að færa útlit hússins til upprunalegs horfs. Það þýðir að viðbyggingin sem er vestan Ráðhússins verður fjarlægð. (meira…)
Ef til vill er Landeyjahöfn og vandi hennar ekki jafn einstakur og við stundum höldum. Er til lausn?

Í undirbúningi mínum fyrir fund í samráðshóp um Landeyjahöfn rakst ég á nokkuð skemmtilegar upplýsingar um það hvernig Ástralar hafa náð tökum á sanddælingu í höfnum við sandstrendur. Sérstaklega þótti mér merkilegt að lesa um vandann sem þeir hafa glímt við í tengslum við Gold Cost og ánna Tweed. (meira…)
Kvikmyndaröð um íslenskan sjávarútveg:

Á morgun, sunnudag kl. 18.00 verður ný íslensk þáttaröð um íslenskan sjávarútveg, forsýnd í Félagsheimilinu. Þættirnir eru gerðir af Jóni Hermannssyni, kvikmyndagerðarmanni. Þættirnir eru fimm talsins og morgun verður fyrsti þátturinn forsýndur. Hann fjallar um tímaskeiðið frá 1940 til ársins 1960. Vestmannaeyjar koma mjög við sögu í þessum fyrsta þætti, m.a. Binni í Gröf og […]
Eimskipshöllin kostar um hálfan milljarð

Nú liggja fyrir kostnaðartölur vegna Eimskipshallarinnar, fjölnota íþróttahússins við Hástein, þ.e.a.s. uppsetningu og frágang hússins. Lokatölur sýna kostnað upp á 412.463.845 krónur þar af eru aukaverk sem samið var um á samningstímanum 33.229.048 krónur. (meira…)