Skandia aftur á flot

Grafskipið Skandia er nú komið aftur á flot eftir umfangsmiklar viðgerðir á botni skipsins. Talsverðar skemmdir voru á skipinu eftir átökin við sjávaröflin í Landeyjahöfn en viðgerð hefur staðið yfir síðustu vikur. Nú er unnið að því að gera skipið sjóklárt en m.a. þurfti að taka dælurör utan af skipinu, svo hægt væri að taka […]
Tvær sveitir sett stefnuna á Músíktilraunir

Á fundi Fræðslu- og menningarráðs á dögunum lagði menningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, Kristín Jóhannsdóttir, fram samning milli fulltrúa ungra tónlistarmanna og Vestmannaeyjabæjar. Í samningnum kemur fram að Vestmannaeyjabær styrkir unga tónlistarmenn í Eyjum um afnot af húsnæði við Skildingaveg með því skilyrði að Vestmannaeyjabær geti nýtt krafta tónlistarmanna við menningartengda viðburði í bænum. (meira…)
Brúarfoss á leið til Eyja eftir sjávarháska

Gámaflutningaskipið Brúarfoss, sem er í eigu Eimskipa, lenti í sjávarháska við Reykjanes í nótt þegar það missti vélaraflið og rak að landi. Togarinn Höfrungur 3 hélt samstundis á staðinn og auk þess varðskipið Ægir og þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu. Þegar verið var að undirbúa að skjóta línu milli Brúarfoss og Höfrungs, tókst vélstjórum […]
Julie Nelson skoraði fyrir N-Írland

Besti leikmaður kvennaliðs ÍBV síðasta sumar, Julie Nelson skoraði fyrir N-Írland gegn Belgíu í undankeppni Heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu. Nelson jafnaði metin 2:2 en leikurinn fór fram í Belgíu. Úrslitin eru hagstæð fyrir íslenska landsliðið sem leikur í sama riðli. (meira…)