Á fundi Fræðslu- og menningarráðs á dögunum lagði menningarfulltrúi Vestmannaeyjabæjar, Kristín Jóhannsdóttir, fram samning milli fulltrúa ungra tónlistarmanna og Vestmannaeyjabæjar. Í samningnum kemur fram að Vestmannaeyjabær styrkir unga tónlistarmenn í Eyjum um afnot af húsnæði við Skildingaveg með því skilyrði að Vestmannaeyjabær geti nýtt krafta tónlistarmanna við menningartengda viðburði í bænum.