Eyjamennirnir láta ekki sitt eftir liggja

Leikmenn og stuðningsmenn meistaraflokks og 2. flokks karla í handbolta hjá ÍBV, eru þessa dagana staddir í æfingaferð í Sevilla á Spáni en þar leikur íslenska landsliðið leiki sína í riðlakeppni HM í handbolta. Eyjamennirnir hafa verið mjög áberandi á pöllunum, sungið nánast látlaust og stutt vel við bakið á sínum mönnum. Hópurinn ætlar að […]

Benjani ekki með í kvöld

Framherjinn Benjani Mwaruwari, sem í vikunni var orðaður við ÍBV, mun ekki leika með liðinu í kvöld í Fótbolta.net mótinu. ÍBV mætir þá Víkingi Ólafsvík en leikur liðanna hefst klukkan 21:00 í Kórnum í Kópavogi en Óskar Örn Ólafsson, formaður knattspyrnuráðs ÍBV sagði að það hefði aldrei staðið til að Benjani myndi spila þennan leik. […]

Ítrekar andstöðu sína við sameiningu embætta

Vestmannaeyjabær leggst alfarið á móti því að breytingar verði gerðar á sýslumannsembættum eins og gert er ráð fyrir í drögum á frumvarpi, sem nú er til meðferðar allsherjanefndar Alþingis. Samkvæmt drögunum verða sýslumannsembættin 8, í stað 24 eins og nú er, og lögreglustjórar verði jafn margir. Vestmannaeyjabær telur hins vegar að frumvarpið feli í sér […]

Umfjöllunarefnið verður eldgosið 23. janúar 1973

Kristján Már Unnarsson, fréttamaður mun næsta sunnudag fjalla um eldgosið í Heimaey 1973, í þætti sínum Um land allt á Stöð 2. Umfjöllunin verður í næstu þáttum en í ár eru 40 ár liðin frá eldgosinu en þættirnir eru allir sýndir í opinni dagskrá, strax á eftir fréttum alla sunnudaga. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.