Takk fyrir okkur!

Við þökkum kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir það mikla traust sem okkur var sýnt í nýliðnum kosningum. Markmið okkar um fjóra þingmenn náðist, hópurinn er nú klár og fjölmörg verkefni sem bíða úrlausnar um allt kjördæmi. Við viljum þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem lögðu hönd á plóginn í kosningabaráttunni. Ykkar framlag, baráttuhugur og stuðningur skipti sköpum. […]

ÍBV liðunum spáð um miðja deild

Karlaliði ÍBV er spáð 7. sæti og kvennaliðinu 5. sæti í árlegri spá forráðamanna liðanna í Pepsídeildum karla og kvenna. Spáin var gerð opinber á kynningarfundi deildanna í dag. FH er spáð sigri í Íslandsmótinu í Pepsídeild karla en Stjörnunni í Pepsídeild kvenna. Þess má geta að bæði Fótbolti.net og 433.is spáðu ÍBV 7. sæti […]

�?tsýnið úr Herjólfi það fallegasta

Markvörður ÍBV, David James er í stóru viðtali í Monitor og prýðir jafnframt forsíðu blaðsins. James fer fögrum orðum um Ísland og íslenska náttúru og rifjar m.a. upp Herjólfsferð sem honum fannst mikið til koma. „Ég fór í ferjuna um daginn og það var ótrúlegt. Himinninn og hafið, allt var skærblátt, tunglið var á lofti […]

KFS úr leik í bikarnum

KFS er úr leik í bikarnum eftir að hafa tapað fyrir Berserkjum í 1. umferðinni en leikurinn fór fram í Reykjavík. Lokatölur urðu 6:2 fyrir Berserki, sem er varalið Víkings í Reykjavík. Berserkir komust í 5:0 áður en Sæþór Jóhannesson náði að minnka muninn. Heimamenn bættu sjötta markinu við en Aron Hugi Helgason minnkaði muninn […]

Enginn búsettur í Eyjum á þing

Enginn þingmaður af þeim tíu sem taka sæti á Alþingi úr Suðurkjördæmi, er búsettur í Vestmannaeyjum. Sam­kvæmt því sem næst verður komist er þetta aðeins í annað sinn í sögu Alþingis sem það gerist. Af tíu þingmönnum í Suður­kjör­dæmi, koma sjö frá ­Reykja­nesi. ­Enginn þingmaður er úr austurhluta kjördæmisins og enginn frá Vest­manna­eyjum. Þingmanna­hópurinn er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.