Saga og súpa í Sagnheimum

Í þessum mánuði eru 386 ár liðin frá því 242 Vestmannaeyingar voru fluttir nauðugir til Alsír og seldir í þrældóm. Af því tilefni býður Sögusetur 1627 til dagskrár í Sagnheimum, byggðasafni. Dagskrá: Gunnhildur Hrólfsdóttir sagnfræðingur flytur erindi um bók sína Ránið, sem er skáldsaga fyrir börn og byggist á Tyrkjaráninu 1627. (meira…)
Fyrsta skrefið í að tryggja öryggi á flutningi á raforku

Á föstudaginn lauk lagningu sæstrengs frá landi til Vestmannaeyja sem er fyrsti áfangi í að endurnýja flutningskerfi raforku til Vestmannaeyja og auka flutningsgetuna. Endanlegar áætlanir um framhaldið liggja ekki fyrir, en það gæti tekið nokkur ár að endurnýja kerfið og í heild gæti kostnaður verið nokkrir milljarðar króna. Áætlað er að sæstrengurinn sem lagður var […]
Skortur á heimilislæknum í Eyjum

Kæru Vestmannaeyingar Í ljósi skorts á heimilislæknum á Íslandi hefur enn sem komið er ekki tekist að manna stöðu Einars Jónssonar heimilislæknis sem mun hætta störfum 1. September nk. Við munum reyna að vinna áfram í því að fá heimilislækni til starfa. (meira…)
Brimnes og Dans á rósum á SPOT í Kópavogi

Á laugardaginn næstkomandi verður stórdansleikur á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi þar sem Eyjasveitirnar Brimnes og Dans á Rósum munu halda uppi stuðinu. Um er að ræða upphitun fyrir þjóðhátíð en sveitirnar koma báðar fram á hátíðinni og verða á Tjarnarsviðinu eins og undanfarin ár og er ætlunin að vera með sömu stemmningu á SPOT og […]
Gefur ekki rétta mynd af Serbíu

ÍBV leikur gegn Rauðu Stjörnunni á morgun, fimmtudag en leikurinn fer fram á heimavelli serbneska liðsins í Belgrad. Stuðningsmenn Rauðu Stjörnunnar voru duglegir að setja inn myndbönd á facebooksíður sem tengdust ÍBV en myndböndin sýndu stuðningsmenn liðsins haga sér heldur ófriðlega í stuðningi sínum við liðið. Oftar en ekki fylgdu myndböndunum skilaboðin „Welcome to hell“ […]
Hundaskítur á gangstéttum bæjarins

Lesandi Eyjafrétta kom við á ritstjórn í morgun og var óhress með umgengni hundaeigenda. Sagðist hann hafa gengið fram á hundaskít fyrir framan heimili sitt í morgun en hann gengur mikið um bæinn og finnst mikið um hundaskít á gangstéttum bæjarins. Flestir hirða upp eftir sína hunda en ekki þarf nema einn til að skemma […]
Ásmundur í drullukasti

Ásmundur Friðriksson, nýkjörinn Alþingismaður lenti heldur betur í drullukasti á dögunum. Nei það var ekki á sumarþingi Alþingis eins og ætla mætti, heldur fékk hann drulluna yfir sig í orðsins fyllstu merkingu. Ásmundur tekur þátt í skemmtilegu verkefni sem ADHD samtökin, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, MND félagið á Íslandi og Þroskahjálp standa […]
Meira rafmagn um nýjan streng eftir 2-3 ár

Þrettán kílómetra rafstrengur hefur verið lagður til Vestmannaeyja. Verkinu var flýtt vegna skemmda sem urðu á eldri streng í haust. Tveir eldri sæstrengir liggja milli lands og Eyja, annar frá 1962, hinn frá 1978. Fyrir sex árum hóf Landsnet undirbúning að endurnýjun þeirra. Þegar bilun varð í öðrum strengnum síðastliðið haust staðfestu danskir sérfræðingar að […]