Sanngjarn sigur á Hásteinsvelli

ÍBV vann sinn annan sigur í Pepsí deildinni í sumar og þann fyrsta á heimavelli, þegar liðið sigraði í dag, Fjölni á Hásteinsvelli 4-2. Christopher Tsonis skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Fjölni en Jonathan Glenn jafnaði svo rétt fyrir hálfleik. �?að var svo á fimm mínútna kafla í seinni hálfleik sem þrjú mörk voru skoruð. […]
Sigurður VE lagður af stað heim á leið

Hið nýja og glæsilega uppsjávarskip Ísfélagsins, Sigurður VE 15, lagði af stað í gærmorgun áleiðis til Vestmannaeyja. Skipið hefur verið í smíðum í Tyrklandi en undanfarna daga hafa síðustu prufukeyrslur verið gerðar á skipinu með áhöfn þess. Áætlað er að siglingin taki um tólf sólarhringa og því má reikna með að skipið sigli inn til […]
Taka á móti Fjölni í dag

Karlalið ÍBV tekur á móti Fjölni á Hásteinsvelli klukkan 14:00 í dag. Gengi ÍBV í deildinni hefur ekki verið nægilega gott það sem af er sumars en liðið hefur aðeins unnið einn leik og er í 12. og neðsta sæti Pepsídeildarinnar. Segja má að sjö lið séu í neðri hluta deildarinnar um þessar mundir en […]
Eyjamenn enn ósigraðir

KFS hefur ekki enn tapað leik í B-riðli 4. deildar karla það sem af er tímabilsins. Í gær tók liðið á móti Ísbirninum og hafði betur 2:1. Gauti �?orvarðarson og Tryggvi Guðmundsson komu KFS í 2:0 með marki í sitthvorum hálfleiknum en gestirnir minnkuðu muninn á 75. mínútu en komust ekki lengra en það. KFS […]