Ein líkamsárás var kærð í liðinni viku

�?að var í nógu að snúast hjá lögreglu í liðinni viku vegna hinna ýmsu mála. Skemmtanahald helgarinnr gekk ágætlega fyrir sig og fá útköll á veitingastaði bæjarins. Ein líkamsárás var kærð í liðinni viku en árásin átti sér stað á skemmtistað aðfaranótt 22. janúar sl. �?arna varð maður fyrir árás annars manns með alvarlegum afleiðingum […]
Ný aflaregla minnkar afla

Ef gamla aflareglan í loðnu væri í gildi hefði heildarkvótinn verið 235 til 250 þúsund tonn í ár í stað 170 þúsund tonna sem heimilað verður að veiða samkvæmt nýju aflareglunni sem nú reynir á í fyrsta skipti. Kvótinn er því 65-80 þúsund tonnum minni en samkvæmt gömlu reglunni. Meiri varúðar gagnvart loðnustofninum gætir í […]
Bónus opnar brátt

Bónus stefnir á að opna nýja verslun í Vestmannaeyjum laugardaginn 6. febrúar næstkomandi gangi allt að óskum, að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. Um verður að ræða hefðbundna opnun Bónuss með sérstökum opnunartilboðum. �?etta er fyrsta Bónusverslunin sem opnuð er í Vestmannaeyjum. Hún verður með svipuðu sniði og Bónus á Selfossi og tæplega 1.200 fermetra […]
Norsk landsliðskona til Eyja

Norska knattspyrnukonan Lisa-Marie Woods er gengin til liðs við úrvalsdeildarlið ÍBV og leikur með því á komandi keppnistímabili. Woods er 31 árs, leikur sem miðjumaður og á að baki 23 landsleiki fyrir Noreg en þrettán þeirra lék hún árið 2010 þegar norska liðið bjó sig undir lokakeppni HM árið 2011. Hún missti hinsvegar af þeirri […]