Norsk landsliðskona til Eyja
Norska knatt­spyrnu­kon­an Lisa-Marie Woods er geng­in til liðs við úr­vals­deild­arlið ÍBV og leik­ur með því á kom­andi keppn­is­tíma­bili.
Woods er 31 árs, leik­ur sem miðjumaður og á að baki 23 lands­leiki fyr­ir Nor­eg en þrett­án þeirra lék hún árið 2010 þegar norska liðið bjó sig und­ir loka­keppni HM árið 2011. Hún missti hins­veg­ar af þeirri loka­keppni vegna meiðsla.
Woods hef­ur víða komið við en hún lék síðast með BIIK Kazyg­urt í Kasakst­an og var í tvö ár hjá Adelai­de United í Ástr­al­íu. Hún hef­ur einnig spilað með liðum á borð við Tur­bine Pots­dam í �?ýskalandi, FC Indi­ana og Bost­on Brea­kers í Banda­ríkj­un­um, Fort­una Hjörr­ing í Dan­mörku og Lilleström, Stabæk og Kol­botn í Nor­egi.
�?á er enski kant­maður­inn Re­bekah Bass kom­in til ÍBV en hún kom til �?rótt­ar um mitt síðasta sum­ar frá Sund­erland. Hún er tví­tug og gerði tvö af þeim sex mörk­um sem �?rótt­ur náði að skora í Pepsi-deild­inni á síðasta ári.
Mbl.is greindi frá.

Nýjustu fréttir

Rauðátan gæti orðið ný gullnáma sjávarútvegsins
Hvalasöngur og tónlist í sundlauginni á Safnahelgi
Fleiri skólar gætu tekið upp Kveikjum neistann 
Safnahelgin sett í Stafkirkjunni í dag
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.