Jafntefli í Breiðholtinu

ÍR og ÍBV mættust í kvöld í Olís deild karla en þetta var fyrsti leikur ÍBV eftir langa pásu. Agn­ar Smári Jóns­son, tryggði ÍBV eitt stig í sín­um fyrsta leik hjá félaginu á þessu tímabili þegar hann jafnaði metin, 25:25, þegar 15 sek­únd­ur voru eft­ir með sínu 10. marki í leikn­um. ÍBV byrjaði leikinn mun […]

Mjölnir mun opna útibú í Eyjum

Bardagafélagið Mjölnir mun opna útibú í Vestmannaeyjum. �?etta staðfestir Jón Viðar Arnþórsson í samtali við MMA Fréttir. Mjölnir er um þessar mundir staðsett á Seljavegi 2 í gamla Loftkastalanum. Félagið mun þó flytja í �?skjuhlíðina þar sem Keiluhöllin var áður til húsa. Nú mun Mjölnir hins vegar opna annað útibú í fyrsta sinn. �??Við stefnum […]

�?ttaslegnir, sumir eru það því miður

�?g hef áhyggjur af okkar samfélagi og því hugarfari og ástandi sem sumir samborgarar okkar upplifa. Fólk virðist óttaslegið og þorir ekki að segja skoðanir sínar ef þær skyldu ekki falla að skoðunum ráðamanna. Fjölmargir hafa komið að máli við mig og beðið mig að koma sínum skoðunum á framfæri með opinberum skrifum. �?g hef […]

Fyrirtæki frá Vestmannaeyjum á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki

Síðastliðin sex ár hefur Creditinfo unnið ítarlega greiningu sem sýnir rekstur hvaða íslensku fyrirtækja telst til fyrirmyndar. Að þessu sinni komust 682 fyrirtæki á listann af þeim 35.842 sem skráð voru í hlutafélagaskrá. Tólf af þeim eru frá Vestmananeyjum. Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi? Hafa skilað ársreikningum til RSK síðustu þrjú ár Minna en 0,5% líkur […]

Olís deildin aftur af stað

Í gær fór Olís deild karla af stað eftir langt hlé þegar fram fór einn leikur en strákarnir leika í dag gegn ÍR í Austurbergi. Leikurinn hefst klukkan 19:30, ÍR-ingar eru næst neðsta sæti deildarinnar með 11 stig en ÍBV í því fimmta með átján stig. (meira…)

Smíði Breka VE í Kína gengur vel

Smíði gengur vel, á nýjum Breka VE í Weihai í Kína. Nú er verið að setja saman blokkirnar sem skipið samanstendur af. �?ær hafa verið forsmíðaðar og búið er að koma fyrir röralögnum ofl., ásamt því að sandblása og mála þær að innan. Samsetningin hefur gengið vel og er skrokkurinn kominn saman frá stefni að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.