Smíði Breka VE í Kína gengur vel
Smíði gengur vel, á nýjum Breka VE í Weihai í Kína. Nú er verið að setja saman blokkirnar sem skipið samanstendur af. �?ær hafa verið forsmíðaðar og búið er að koma fyrir röralögnum ofl., ásamt því að sandblása og mála þær að innan. Samsetningin hefur gengið vel og er skrokkurinn kominn saman frá stefni að skut en mikil suðuvinna er þó eftir. Samhliða samsetningunni er unnið að ýmsum lögnum, sjólögnum, vatnslögnum ofl. Aðalvél, gír og ásrafal hefur verið komið fyrir, það var gert áður en vélarrúminu var lokað í samsetningu blokkanna. Aðalvélin er staðsett ofan í kjölnum og vélarrúmið er í raun á tveimur hæðum. �?etta er gert til að hámarka aðstreymi að skrúfunni. Í næstu viku hefst kínverska nýárið og hátíðahöld tengd því. �?á liggur vinna að mestu niðri en hefst svo aftur um miðjan mánuðinn. Meðfylgjandi myndir eru frá Rúnari Bogasyni, eftirlistmanni með smíðinni.

Nýjustu fréttir

Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.