
Mikið sjónarspil var á himni yfir Vestmannaeyjum í gærkvöldi þegar skær norðurljós breiddu úr sér yfir bænum.
Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, náði meðfylgjandi myndum á ferðum sínum milli staða við að mynda hrekkjavökuna. Sannarlega viðeigandi að norðurljósin skyldu líka bregða á leik og bæta við dulúð kvöldsins.
Á myndunum má sjá græna ljósboga og slæður yfir fjöllunum og byggðinni. Græni liturinn, sem er algengasti litur norðurljósa, verður til þegar rafhlaðnar agnir rekast á súrefni hátt í lofthjúpnum. Slík græn ljós myndast í um 100 til 300 kílómetra hæð, samkvæmt Kanadísku geimferðastofnuninni.
Norðurljós verða til þegar orkumiklar agnir berast eftir segulsviði jarðar inn í efri lög lofthjúpsins. Þar rekast þær á frumeindir og sameindir sem gefa frá sér ljós. Ljósin geta tekið á sig ýmsar myndir, meðal annars boga og fellingar sem minna á lýsandi gluggatjöld, eins og bandaríska veður- og hafrannsóknastofnunin NOAA lýsir.


