Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur

Í öðrum þætti „Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma“ fá áhorfendur að skyggnast inn í fjölbreytt mannlíf Eyjanna. Myndefnið er að mestu frá árunum 1950–1970 og varðveitir tíðaranda liðinna áratuga. Eyjafréttir birta hér upptöku frá sýningarröð Sagnheima þar sem gamlar kvikmyndir eru sýndar með skýringum og samtali við sýningargesti. Að þessu sinni má meðal annars […]

Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf

Stjórnsýsla Vestmannaeyjabæjar, framtíð Landeyjahafnar og niðurstaða í kærumáli vegna heilsuræktarútboðs voru meðal viðfangsefna vikunnar á Eyjafréttum. Safnahelgin og hrekkjavakan settu svip á mannlífið og Eyjakonur héldu áfram sigurgöngu sinni í handboltanum. Hér er litið yfir vikuna frá 25. til 31. október. Ólík afstaða til yfirferðar á verklagi Eftirfylgni þriggja úrskurða innviðaráðuneytisins um ólögmætar uppsagnir starfsmanna […]

Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli

Karlalið ÍBV tók á móti Stjörnunni í 9. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í dag. Eyjamenn tryggðu sér þar mikilvæg stig með fimm marka sigri, 31–26 Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur og komust í 2-4 á upphafsmínútunum. Eyjamenn svöruðu hins vegar fljótt fyrir sig og náðu undirtökunum. Þeir höfðu náð þriggja marka forskoti, 11-8, þegar […]

Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært

Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto hefur hafið vinnu við að dýpka og breikka innsiglingarrennu Vestmannaeyjahafnar. Fjarlægja á um 50 þúsund rúmmetra af efni áður en ráðist verður í styttingu Hörgaeyrargarðs. Óskar Pétur Friðriksson myndaði skipið að störfum í gærkvöldi. Í færslu Vestmannaeyjahafnar á Facebook í gær kemur fram að framkvæmdir séu hafnar í verkefninu við styttingu Hörgaeyrargarðs. […]

Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum

Mikið sjónarspil var á himni yfir Vestmannaeyjum í gærkvöldi þegar skær norðurljós breiddu úr sér yfir bænum. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, náði meðfylgjandi myndum á ferðum sínum milli staða við að mynda hrekkjavökuna. Sannarlega viðeigandi að norðurljósin skyldu líka bregða á leik og bæta við dulúð kvöldsins. Á myndunum má sjá græna ljósboga og […]

Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts

Innviðaráðuneytið hefur ekki getað staðfest að endurnýjun dráttarbáts Vestmannaeyjahafnar verði tekin inn í samgönguáætlun eða að fjármagn fáist úr Hafnabótasjóði. Bæði Landhelgisgæslan og Vegagerðin leggja áherslu á mikilvægi verkefnisins fyrir öryggi við suðurströndina. Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja harmar þessa niðurstöðu í bókun frá fundi ráðsins 28. október. Þar fór hafnarstjóri yfir stöðuna varðandi leigu eða […]

Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri

Karlalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Stjörnunni í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í dag, klukkan 13:30. Leikurinn er í níundu umferð Olísdeildar karla. Eyjamenn eru í sjötta sæti deildarinnar með átta stig og freista þess að fylgja eftir naumum útisigri á Víkingi á fimmtudaginn. ÍBV vann Víking 30–29 í Virkinu á fimmtudagskvöld og tryggði sér þar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.