Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Þjóðhátíð, leikskólar, bryggjulíf og skátastarf í gömlum Eyjamyndum
Glitfaxi á flugvellinum í Vestmannaeyjum. Í þættinum er minnst flugslyssins 31. janúar 1951, þegar tuttugu manns fórust. Skjáskot úr myndbandi Sagnheima.
Halldor B Staff
Halldór B. Halldórsson

Í öðrum þætti „Vestmannaeyjar í gegnum linsu liðins tíma“ fá áhorfendur að skyggnast inn í fjölbreytt mannlíf Eyjanna. Myndefnið er að mestu frá árunum 1950–1970 og varðveitir tíðaranda liðinna áratuga.

Eyjafréttir birta hér upptöku frá sýningarröð Sagnheima þar sem gamlar kvikmyndir eru sýndar með skýringum og samtali við sýningargesti. Að þessu sinni má meðal annars sjá myndir frá Þjóðhátíð, úr leikskólum, af listsýningum, frá bryggjulífi og skátastarfi.

Arnar Sigurmundsson fjallar um myndefnið og leiðir umræður. Með upprifjun og frásögnum gesta fá myndirnar aukið samhengi og minningar um fólk, staði og atburði lifna við.

Kvikmyndirnar í sýningarröðinni eru eftir Loft Guðmundsson, Svein Ársælsson, Friðrik Jesson, Guðjón Ólafsson, Ósvald Knudsen og fleiri. Mikill áhugi var á sýningunum og vegna aðsóknar var sjónvörpum í salnum fjölgað í þrjú svo gestir gætu betur fylgst með.

Fyrsta þáttinn má sjá hér.

Upptöku af öðrum þætti má sjá hér fyrir neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.