Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn - uppfært
Fjarlægja um 50 þúsund rúmmetra úr innsiglingunni
Dæluskipið Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi. Unnið er að dýpkun innsiglingarrennunnar við Hörgaeyrargarð. Mynd: Eyjafréttir/Óskar Pétur Friðriksson.

Dýpkunarskipið Sebastiano Caboto hefur hafið vinnu við að dýpka og breikka innsiglingarrennu Vestmannaeyjahafnar. Fjarlægja á um 50 þúsund rúmmetra af efni áður en ráðist verður í styttingu Hörgaeyrargarðs. Óskar Pétur Friðriksson myndaði skipið að störfum í gærkvöldi.

Í færslu Vestmannaeyjahafnar á Facebook í gær kemur fram að framkvæmdir séu hafnar í verkefninu við styttingu Hörgaeyrargarðs. Dýpkunin er fyrsti hluti þess, en með breikkun innsiglingarrennunnar og styttingu garðsins er stefnt að bættum siglingaaðstæðum og auknu öryggi í höfninni.

Sebastiano Caboto er á vegum belgíska dýpkunarfyrirtækisins Jan De Nul. Eins og Eyjafréttir greindu frá í byrjun október var fyrirhugað að skipið dýpkaði innsiglingarrennuna áður en kæmi að styttingu garðsins.

Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafnarinnar verður farið í verðkönnun á styttingu garðsins þegar dýpkuninni lýkur. Í framhaldinu verður hafist handa við að stytta hann um allt að 40 metra.

Efnið losað í stæði fyrirhugaðs hafnargarðs

Efnið sem tekið er úr innsiglingunni er losað utan við Eiðið, þar sem nýr hafnargarður er fyrirhugaður. Vestmannaeyjahöfn segir þetta stórt skref í verkefninu um hafnaraðstöðu utan við Eiðið.

Skipið losar farminn í fyrirhuguðu garðstæði og telur höfnin því að segja megi að uppbygging þar sé hafin. Framkvæmdirnar tengja þannig saman breikkun innsiglingarinnar í núverandi höfn og undirbúning hafnaraðstöðu utan við Eiðið.

Afmörkun dýpkunarsvæðisins við Hörgaeyrargarð. Á uppdrættinum er svæðið merkt um 30.000 fermetrar og efnismagn um 120.000 rúmmetrar. Samkvæmt nýjustu upplýsingum hafnarinnar á að fjarlægja um 50.000 rúmmetra við þá dýpkun sem nú stendur yfir. Mynd: Vestmannaeyjahöfn.

 

Nýjustu fréttir

Í þjónustu við útgerðir og Eyjamenn í 45 ár
Herjólfur til Þorlákshafnar
ÍBV mætir KA/Þór á Akureyri
Úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar í Höllinni á morgun
Feðgarnir mættust í þýsku B-deildinni – Erlingur fagnaði sigri
Gul viðvörun á Suðurlandi á laugardagskvöld
Heimir og Írar mæta Króatíu í umspilinu
Grýla gerir uppreisn fyrir fullu húsi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.