Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Dýpkun getur hafist en enn á eftir að sækja um framkvæmdaleyfi
Herj Innsigling Horgeyrargard Tms Cr
Herjólfur siglir inn Vestmannaeyjahöfn. Fyrir framan ferjuna má sjá Hörgaeyragarð. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Undirbúningur að styttingu Hörgaeyrargarðs hefur færst áfram með ákvörðun HMS og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Samkvæmt fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja er nú hægt að hefja dýpkun innsiglingarrennunnar. Enn á eftir að sækja um framkvæmdaleyfi.

Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 30. september. Þar kemur fram að fyrirhugað sé að sanddæluskipið Sebastiano Caboto dýpki innsiglingarrennuna og að stytting garðsins verði boðin út í framhaldinu.

Markmið framkvæmdarinnar er að breikka innsiglingarrennuna og auka þannig siglingaöryggi í Vestmannaeyjahöfn.

Leyfi fyrir allt að 120.000 rúmmetrum

Umhverfis- og orkustofnun veitti 17. september leyfi til að varpa allt að 120.000 rúmmetrum af dýpkunarefni og efni úr garðinum í hafið. Leyfið gildir til 17. september 2030.

Losunarsvæðið er innan hafnarsvæðis Vestmannaeyja, norðan við Eiðið, í garðstæði fyrirhugaðs hafnargarðs. Á yfirlitsteikningu Vegagerðarinnar er dýpkunarsvæðið merkt um 30.000 fermetrar og losunarsvæðið um 15.000 fermetrar.

Í leyfinu kemur fram að áætlaður verktími sé á árunum 2026–2028. Gert sé ráð fyrir dýpkunarpramma við dýpkun og við að fjarlægja garðinn, auk þess sem dýpkunarskip verði notað við hluta framkvæmdarinnar.

Ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Samkvæmt leyfisbréfinu ákvað HMS 18. ágúst að framkvæmdin væri ekki líkleg til að hafa umtalsverð umhverfisáhrif og væri því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Hafrannsóknastofnun gerði ekki sérstakar athugasemdir við fyrirhugað varp efnisins í hafið.

Leyfið er meðal annars bundið skilyrðum um að takmarka gruggmyndun, tilkynna upphaf og lok dýpkunar- og efnislosunarlotu og halda skrá yfir magn og staðsetningu efnis sem losað er.

Framkvæmda- og hafnarráð fagnar því að tilskilin leyfi liggi fyrir að undanskildu framkvæmdaleyfi, sem hafnarstjóri á eftir að sækja um. Ráðið leggur áherslu á að hafa hraðar hendur svo framkvæmdir við styttingu garðsins geti hafist sem allra fyrst.

Fyrirhugað dýpkunarsvæði við innsiglingu Vestmannaeyjahafnar og losunarsvæði norðan við Eiðið. Dýpkunarsvæðið er um 30.000 fermetrar en losunarsvæðið um 15.000 fermetrar. Mynd/Vegagerðin.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.