Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð

Herjólfur ohf. óskar eftir 65 milljóna króna fjárveitingu til kaupa á tveimur vararafmótorum fyrir ferjuna. Mótorarnir hafa þegar verið pantaðir og er afhending áætluð í byrjun febrúar 2027. Félagið segir hins vegar að verði fjármögnun ekki tryggð af hálfu ríkisins verði að falla frá kaupunum. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis […]

Framkvæmdir og ferjusigling – myndband

Halldór B. Halldórsson fór á stjá með myndavélina og skoðaði framkvæmdir á nokkrum stöðum í Vestmannaeyjum. Í nýju myndbandi hans er meðal annars litið við í Miðgerði og við FES, auk þess sem Herjólfur sést sigla inn til hafnar. Í Miðgerði standa yfir jarðvegsframkvæmdir vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar. Samkvæmt upplýsingum Vestmannaeyjabæjar er gert ráð fyrir sex […]

Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir

Svava Kristín Grétarsdóttir, fjölmiðlakona, hefur gengið til liðs við Eyjafréttir og mun stýra nýjum sjónvarpsþætti sem sýndur verður á vef Eyjafrétta. Þar fær hún til sín áhugaverða viðmælendur til samtals um lífið í Eyjum, málefni líðandi stundar og það sem fólk hefur tekið sér fyrir hendur. Viðtölin verða tekin upp í mynd og hljóði og […]

Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína

Mikið hefur verið um að vera hjá LAXEY í Vestmannaeyjum að undanförnu samhliða áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins í Viðlagafjöru. Kínverski markaðurinn er meðal þeirra markaða sem fyrirtækið horfir til, lax frá LAXEY er kominn á borð þriggja Michelin-stjörnu veitingastaðar í Kaupmannahöfn og fyrstu prófanir hafa farið fram á nýrri tækni Héðins til fullnýtingar hliðarafurða frá eldinu.  […]

Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum

Vestmannaeyjabær vinnur nú að gerð nýrrar atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið og óskar í tengslum við þá vinnu eftir sjónarmiðum íbúa, atvinnurekenda og annarra sem tengjast samfélaginu. Markmið atvinnustefnunnar er að styðja við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf í Vestmannaeyjum, áframhaldandi uppbyggingu og góð lífsgæði til framtíðar. Liður í vinnunni er rafræn könnun þar sem þátttakendum gefst kostur […]

Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri

Nemendur, starfsfólk og vinir Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum gengu á dögunum yfir Fimmvörðuháls við einstaklega góðar aðstæður. Veðrið lék við göngufólkið sem naut náttúrufegurðar á leiðinni frá Skógum í Þórsmörk. Í frétt á vef FÍV kemur fram að gangan sé orðin fastur liður í skólastarfinu. Hún veiti þátttakendum bæði líkamlega og andlega áskorun og tækifæri til […]

Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og starfsfólk atvinnuvegaráðuneytisins heimsóttu Grupeixe, annað af tveimur fyrirtækjum Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, síðastliðinn föstudag. Þar kynntu gestirnir sér starfsemina og mikilvægi íslensks saltfisks á Portúgalsmarkaði. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Vinnslustöðvarinnar. Ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins voru í nokkurra daga ferð um Portúgal ásamt mökum sínum og höfðu viðkomu hjá […]

Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær

Herj Innsigling Horgeyrargard Tms Cr

Undirbúningur að styttingu Hörgaeyrargarðs hefur færst áfram með ákvörðun HMS og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Samkvæmt fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyja er nú hægt að hefja dýpkun innsiglingarrennunnar. Enn á eftir að sækja um framkvæmdaleyfi. Málið var tekið fyrir á fundi ráðsins 30. september. Þar kemur fram að fyrirhugað sé að sanddæluskipið Sebastiano Caboto dýpki […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.