Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Eyjamenn eru hvattir til að taka þátt í mótun nýrrar atvinnustefnu Vestmannaeyjabæjar.

Vestmannaeyjabær vinnur nú að gerð nýrrar atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið og óskar í tengslum við þá vinnu eftir sjónarmiðum íbúa, atvinnurekenda og annarra sem tengjast samfélaginu.

Markmið atvinnustefnunnar er að styðja við öflugt og fjölbreytt atvinnulíf í Vestmannaeyjum, áframhaldandi uppbyggingu og góð lífsgæði til framtíðar.

Liður í vinnunni er rafræn könnun þar sem þátttakendum gefst kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Könnunin er nafnlaus og tekur aðeins nokkrar mínútur að svara. Frestur til þátttöku er til og með 20. október.

Hægt er að taka þátt í könnuninni hér

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.