Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Nemendur, starfsfólk og vinir FÍV nutu blíðskaparveðurs og stórbrotinnar náttúru í göngu yfir Fimmvörðuháls á dögunum. Ljósmyndir/FÍV

Nemendur, starfsfólk og vinir Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum gengu á dögunum yfir Fimmvörðuháls við einstaklega góðar aðstæður. Veðrið lék við göngufólkið sem naut náttúrufegurðar á leiðinni frá Skógum í Þórsmörk.

Í frétt á vef FÍV kemur fram að gangan sé orðin fastur liður í skólastarfinu. Hún veiti þátttakendum bæði líkamlega og andlega áskorun og tækifæri til samveru utan skólastofunnar.

Með í för voru einnig einstaklingar sem hafa áður tekið þátt í göngunni og styðja nemendur með hvatningu og góðu fordæmi. Að sögn skólans hafa þeir orðið mikilvægur hluti þeirrar hefðar sem skapast hefur í kringum ferðina.

Gangan var hluti af þátttöku FÍV í #BeActive, Íþróttaviku Evrópu, sem hvetur til aukinnar hreyfingar og heilbrigðs lífsstíls. Skólinn fékk styrk frá verkefninu til að standa að ferðinni. FÍV þakkar nemendum, starfsfólki og sjálfboðaliðum fyrir eftirminnilegan dag og góða samveru.

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.