Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Minnisvarðinn um Pelagus-slysið á austanverðri Heimaey. Í fjarska sjást Elliðaey og Bjarnarey. Mynd/Halldór B. Halldórsson

Halldór B. Halldórsson fór á stjá með myndavélina og skoðaði framkvæmdir á nokkrum stöðum í Vestmannaeyjum. Í nýju myndbandi hans er meðal annars litið við í Miðgerði og við FES, auk þess sem Herjólfur sést sigla inn til hafnar.

Í Miðgerði standa yfir jarðvegsframkvæmdir vegna fyrirhugaðrar íbúðauppbyggingar. Samkvæmt upplýsingum Vestmannaeyjabæjar er gert ráð fyrir sex einbýlishúsum og tveimur parhúsum við Miðgerði 1–11. Á aðliggjandi lóðum við Helgafellsbraut 22–26 er jafnframt gert ráð fyrir raðhúsi með þremur íbúðum.

Halldór beinir einnig myndavélinni að framkvæmdum við FES og fangar komu Herjólfs þegar ferjan siglir um innsiglinguna.

Myndbandið má sjá hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Tekjur á íbúa næstlægstar en afkoma meðal þeirra bestu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.