Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Herjólfur á siglingu frá Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Herjólfur ohf. óskar eftir 65 milljóna króna fjárveitingu til kaupa á tveimur vararafmótorum fyrir ferjuna. Mótorarnir hafa þegar verið pantaðir og er afhending áætluð í byrjun febrúar 2027. Félagið segir hins vegar að verði fjármögnun ekki tryggð af hálfu ríkisins verði að falla frá kaupunum.

Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis vegna fjárlagafrumvarps fyrir árið 2027. Umsögnin er dagsett í dag, 5. október.

Í erindinu er vísað til alvarlegrar bilunar í öðrum rafmótor Herjólfs síðastliðið vor. Viðgerð hafi tekið tæpa þrjá og hálfan mánuð og skipið lengst af siglt á skertu afli á því tímabili. Stjórnhæfni hafi verið skert, ganghraði minni og erfiðara að sigla til Landeyjahafnar við krefjandi aðstæður. Vegna minni ganghraða hafi jafnframt ekki verið unnt að halda fullri sumaráætlun.

Aðkoma Baldurs kostaði rúmlega 200 milljónir

Til að draga úr hættu á þjónusturofi milli lands og Eyja var Breiðafjarðarferjan Baldur staðsett í Vestmannaeyjum þar til viðgerð Herjólfs lauk. Í umsögninni segir að sú ráðstöfun hafi verið nauðsynleg vegna samgönguöryggis, en fjarvera Baldurs hafi jafnframt valdið verulegri röskun á ferjusamgöngum um Breiðafjörð.

Samkvæmt umsögninni nam kostnaður vegna aðkomu Baldurs að siglingum til Vestmannaeyja í sumar rúmlega 200 milljónum króna. Áætlað kaupverð beggja vararafmótoranna sé hins vegar um 65 milljónir króna, eða innan við þriðjungur þess kostnaðar.

Herjólfur ohf. telur að með varamótora tiltæka megi stytta verulega þann tíma sem skipið er frá siglingum eða siglir á skertu afli. Þannig megi draga úr þörf fyrir langvarandi og kostnaðarsamar afleysingar. Í umsögninni er áætlað að aðeins þurfi að taka Herjólf úr áætlun í fimm sólarhringa á meðan skipt er um mótor, sé varamótor fyrir hendi.

Ráðherra sagði þurfa að tryggja varamótora

Rafmótorarnir tveir í Herjólfi eru ólíkir og því þarf tvo varamótora. Smíðatími þeirra er um níu mánuðir. Í umsögninni segir að forsvarsmenn Herjólfs ohf. hafi ákveðið að panta mótorana að undangengnum samtölum við fulltrúa Vegagerðarinnar og innviðaráðuneytisins.

Í tilkynningu innviðaráðuneytisins 22. júní síðastliðinn lagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra áherslu á að draga úr líkum á að sambærilegt ástand endurtæki sig eða varaði jafn lengi.

„Til að mynda þarf að tryggja að rekstraraðilar Herjólfs hafi yfir að ráða sérsmíðuðum varamótorum,“ sagði ráðherra.

Segja fjármögnun á ábyrgð eiganda skipsins

Herjólfur ohf. hefur þegar greitt staðfestingargjald sem nemur 30 prósentum af kaupverði mótoranna. Félagið segir að eftir ágjafir ársins hafi það ekki fjárhagslegt bolmagn til að bera kostnaðinn af kaupunum.

Í erindinu er lögð áhersla á að íslenska ríkið sé eigandi Herjólfs og Vegagerðin fari með eigandahlutverkið fyrir þess hönd. Herjólfur ohf. sé rekstraraðili skipsins, en ekki eigandi þess. Það sé því afstaða félagsins að fjármögnun sérsmíðaðs varabúnaðar sé eðlilegur og nauðsynlegur þáttur í ábyrgð ríkisins á rekstrarhæfi skipsins.

Óskað er eftir að fjárveitingin taki bæði til endurgreiðslu staðfestingargjaldsins og greiðslu eftirstöðva kaupverðsins. Jafnframt óska fulltrúar Herjólfs ohf. eftir að koma á fund fjárlaganefndar til að gera frekari grein fyrir erindinu.

Nýjustu fréttir

Mótorarnir pantaðir en fjármögnun ótryggð
Framkvæmdir og ferjusigling – myndband
Svava Kristín til liðs við Eyjafréttir
Frá Vestmannaeyjum á borð neytenda í Kína
Kalla eftir sjónarmiðum um atvinnulíf í Eyjum
Gengu yfir Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri
Kynntu ráðherra sérstöðu íslensks saltfisks í Portúgal
Stytting Hörgaeyrargarðs færist nær
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.