Furðuverur af ýmsu tagi voru á ferð um götur Vestmannaeyjabæjar í kvöld þegar hrekkjavakan var haldin. Börn í búningum gengu í hús í leit að sælgæti og á meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá óhugnanlegan trúð, köngulóarvefi og unga nammigesti í margvíslegum gervum.
Hrekkjavakan hefur smám saman fest sig í sessi hér á landi. Búningar, draugalegar skreytingar og sælgætissöfnun eru meðal þess sem einkennir hátíðina. „Grikk eða gott“ vísar til þess að húsráðendur standi frammi fyrir vali: að gefa góðgæti eða eiga á hættu að verða fyrir grikk. Siðurinn að ganga þannig í hús á sér að minnsta kosti aldarlanga sögu, eins og rakið er í nýlegri umfjöllun Bændablaðsins.
Ljósmyndari Eyjafrétta, Óskar P. Friðriksson, fór á stjá í kvöld og festi á myndir nokkrar af þeim furðuverum sem urðu á vegi hans víðsvegar um bæinn.
Hér að neðan má sjá myndir frá hrekkjavökukvöldinu í Eyjum.