Grikk eða gott í Eyjum – myndir

Furðuverur af ýmsu tagi voru á ferð um götur Vestmannaeyjabæjar í kvöld þegar hrekkjavakan var haldin. Börn í búningum gengu í hús í leit að sælgæti og á meðfylgjandi myndum má meðal annars sjá óhugnanlegan trúð, köngulóarvefi og unga nammigesti í margvíslegum gervum. Hrekkjavakan hefur smám saman fest sig í sessi hér á landi. Búningar, […]
Erlingur og lærisveinar áfram á sigurbraut í Þýskalandi

Eyjamaðurinn Erlingur Richardsson heldur áfram að gera góða hluti með Minden í þýsku B-deildinni í handbolta. Liðið vann sannfærandi sjö marka sigur á Ferndorf, 27-20, á heimavelli í dag. Þetta var fimmti sigur Minden í röð undir stjórn Erlings, en hann tók við sem aðalþjálfari liðsins í lok september. Áður en Erlingur tók við hafði […]
Konunglegt drama í Sagnheimum – hver er dularfulli Íslendingurinn?

Hneykslismál, sviptingar og óvænt Íslandstenging verða í brennidepli þegar Guðný Ósk Laxdal fjallar um norsku konungsfjölskylduna í Sagnheimum á morgun, sunnudaginn 1. nóvember kl. 13. Fyrirlesturinn er hluti af Safnahelgi í Vestmannaeyjum. Órói hefur einkennt lífið í norsku konungshöllinni undanfarna mánuði. Hneykslismál og óvæntar vendingar hafa haldið konungsfjölskyldunni í sviðsljósinu og vakið spurningar um stöðu […]
Völundarhús og sögustund í myrkri á Bókasafninu

Hrekkjavökustemning var á Bókasafni Vestmannaeyja í dag þegar gestum var boðið að spreyta sig í hræðilegu völundarhúsi og hlýða á skuggalegar sögur í myrkri. Safnið hafði verið klætt í hrekkjavökubúning og ýmislegt var í boði fyrir gesti. Þeir hugrökkustu gátu lagt leið sína í gegnum hrekkjavökuvölundarhús í anddyrinu og klukkan 13 hófst sögustund í myrkri. […]
Fimmti sigur ÍBV í röð kom gegn Gróttu

Kvennalið ÍBV í handbolta mætti Gróttu í Hertz-höllinni í 7. umferð Olís deildar kvenna í dag. Eyjakonur fögnuðu þar sínum fimmta sigri í röð þegar þær lögðu heimakonur að velli, 24-26, eftir spennandi leik. Með sigrinum fer ÍBV upp í annað sæti deildarinnar. Gróttukonur voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og höfðu yfirhöndina allan hálfleikinn. […]
250 rúmmetra tankur kominn á sinn stað

250 rúmmetra tankur var settur á sinn stað norðan við FES, fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins á fimmtudaginn. Tankurinn er ætlaður fyrir kælisjó frá skipi og á að stuðla að betra jafnvægi og aukinni stjórn á vinnsluferlinu. Að sögn Guðlaugs Friðþórssonar, verkefnastjóra í Hrognahúsi og starfsmanns Miðstöðvarinnar, verður kælisjórinn síaður frá loðnunni og síðan settur aftur inn í […]
SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, mótmælir auknum álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi. Þingið krefst þess að fyrirhuguðum skattahækkunum og öðrum íþyngjandi breytingum verði frestað þar til óháð mat á samanlögðum áhrifum þeirra liggur fyrir. Þetta kemur fram í ályktun ársþingsins, sem haldið var á Hvolsvelli 29. og 30. október, að því er […]
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi

„Að kveikja neistann“ er lítið rannsóknar- og þróunarverkefni sem hefur sýnt fram á árangur í námi og starfi, fyrst í Eyjum og síðar einnig í Lindaskóla í Kópavogi. Markmið verkefnisins er að efla vellíðan barna, vekja áhuga þeirra og ástríðu fyrir námi og skólastarfi og efla þannig árangur. Hugmyndafræðin á bak við verkefnið er einföld […]
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir

Söngvarinn Hafsteinn Þórólfsson kom fram á tónleikum í Eldheimum í gærkvöldi ásamt Einari Scheving, Magnúsi R. Einarssyni og Þóri Ólafssyni. Tónleikarnir voru hluti af dagskrá Safnahelgarinnar í Vestmannaeyjum. Á efnisskránni voru eyjaperlur og fleiri lög. Hafsteinn á sterkar rætur í Eyjum en langafi hans í móðurætt var tónskáldið Oddgeir Kristjánsson. Hann hefur meðal annars flutt […]
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju

Á morgun, sunnudaginn 1. nóvember verður sunnudagaskóli í Landakirkju kl. 11.00. Engin messa verður kl. 13.00, en um kvöldið, kl. 20.00, verður allraheilagramessa þar sem látinna ástvina og samferðafólks verður minnst í þakklæti. Í tilkynningu frá Landakirkju kemur fram að sérstaklega verði minnst þeirra sem látist hafa hér í Eyjum og/eða verið jarðsett í kirkjugarði […]
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar

Herjólfur siglir á ný til Landeyjahafnar í dag eftir að hafa siglt til Þorlákshafnar undanfarna daga. Fyrirhuguð er ein ferð fyrir hádegi en tilkynnt verður um framhald siglinga klukkan 11:00. Brottför frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 10:45. Í tilkynningu frá Herjólfi eru farþegar minntir á að á þessum árstíma geti þurft […]
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu

ÍBV mætir Gróttu í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi klukkan 14:00 í dag í sjöundu umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik. Eyjakonur hafa unnið fimm leiki í röð og eru í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex leiki. Grótta er í sjöunda sæti með fjögur stig. ÍBV hefur farið vel af stað á tímabilinu og aðeins […]