SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
default
Vestmannaeyjar. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson.

Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, SASS, mótmælir auknum álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi. Þingið krefst þess að fyrirhuguðum skattahækkunum og öðrum íþyngjandi breytingum verði frestað þar til óháð mat á samanlögðum áhrifum þeirra liggur fyrir.

Þetta kemur fram í ályktun ársþingsins, sem haldið var á Hvolsvelli 29. og 30. október, að því er segir á vef SASS. Ályktunin ber yfirskriftina „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs!“

Telja byrðarnar falla misjafnt

Í ályktuninni er því haldið fram að um helming nýrra skatttekna ríkisins eigi að sækja í Suðurkjördæmi, þar sem rúmlega níu prósent landsmanna búi.

Meðal þess sem þingið gerir athugasemdir við eru náttúrupassi, hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald og vegtollar. Þá er vísað til loftbrúar og óvissu um lagaumgjörð lagareldis.

Að mati ársþingsins geta þessar breytingar haft alvarleg áhrif á íbúa og atvinnulíf í kjördæminu, skert lífskjör og leitt til tekjutaps hjá sveitarfélögum og ríkissjóði. Þingið telur mótsögn felast í því að stjórnvöld hvetji til fjárfestinga og eflingar byggða en auki um leið álögur og óvissu í rekstri fyrirtækja.

Vilja endurskoða gjaldtöku

Þingið krefst þess að ríkisstjórnin falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, við Gullfoss og Geysi. Þess í stað verði mótuð samræmd og sanngjörn stefna um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu ríkisins á landsvísu.

Jafnframt verði fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón endurskoðuð og áhrif hennar á fjárfestingar, atvinnuuppbyggingu og samkeppnishæfni metin.

SASS leggur einnig áherslu á að tekjur ríkisins af ferðaþjónustu skili sér með sanngjörnum hætti til uppbyggingar innviða í þeim samfélögum þar sem álagið verður til.

Kalla eftir skýrri lagaumgjörð og samráði

Í ályktuninni er þess jafnframt krafist að ríkisstjórnin leggi fram frumvarp um lagareldi á vorþingi 2027, svo greininni verði tryggð skýr lagaumgjörð og fyrirsjáanleiki.

Þá skorar ársþingið á þingmenn Suðurkjördæmis að beita sér þvert á flokkslínur fyrir frestun fyrirhugaðra skattahækkana og annarra íþyngjandi breytinga meðan áhrif þeirra eru metin.

Þingið gagnrýnir skort á samráði við sveitarfélög og leggur áherslu á að þau komi að málum frá upphafi stefnumótunar. Sveitarfélög og atvinnulíf á Suðurlandi séu reiðubúin að axla sanngjarna ábyrgð á innviðauppbyggingu og sameiginlegri þjónustu, en skipting byrðanna verði að byggjast á jafnræði og fyrirsjáanleika.

Ályktun ársþings SASS má lesa í heild á vef samtakanna.

Nýjustu fréttir

SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.