Hneykslismál, sviptingar og óvænt Íslandstenging verða í brennidepli þegar Guðný Ósk Laxdal fjallar um norsku konungsfjölskylduna í Sagnheimum á morgun, sunnudaginn 1. nóvember kl. 13. Fyrirlesturinn er hluti af Safnahelgi í Vestmannaeyjum.
Órói hefur einkennt lífið í norsku konungshöllinni undanfarna mánuði. Hneykslismál og óvæntar vendingar hafa haldið konungsfjölskyldunni í sviðsljósinu og vakið spurningar um stöðu hennar og framtíð.
Guðný Ósk Laxdal, sérfræðingur í málefnum konungsfjölskyldna, ætlar að fara yfir helstu atburði og varpa ljósi á það sem hefur verið að gerast innan norsku konungsfjölskyldunnar. Hún lumar jafnframt á óvæntri Íslandstengingu: Lítt þekktur Íslendingur kemur við sögu. Hver hann er og hvernig hann tengist fjölskyldunni verður upplýst á fyrirlestrinum.
Guðný hefur um árabil haldið úti blogginu og Instagram-reikningnum Royal Icelander, þar sem hún miðlar fréttum og fróðleik um konungsfjölskyldur heimsins.
„Áhugi minn á kóngafólki nær eins langt aftur og ég man eftir mér,“ segir Guðný. Hún skrifaði BA-ritgerð sína í ensku við Háskóla Íslands um nútímavæðingu bresku konungsfjölskyldunnar og hlutverk hennar í samfélaginu.
Hún hefur haldið fyrirlestra víða um land og er reglulegur álitsgjafi í útvarpi og sjónvarpi þegar stórtíðindi berast af konungsfjölskyldunum. Sérþekking hennar liggur einkum á sviði bresku konungsfjölskyldunnar en hún fylgist einnig náið með þeim norrænu.
„Það hefur svo sannarlega verið viðburðaríkt ár hjá þeim. Mikið drama og miklar breytingar,“ segir Guðný um norsku konungsfjölskylduna.
Gestir í Sagnheimum fá að heyra nánar af þessum sviptingum og kynnast tengslum hins dularfulla Íslendings við fjölskylduna.
Fyrirlesturinn hefst kl. 13 á morgun, sunnudag. Engin krafa er um kjólföt eða kórónu.