Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Frá guðsþjónustu í Landakirkju. Í allraheilagramessu á sunnudagskvöld verða nöfn látinna lesin upp og kveikt á kerti fyrir hvern og einn. Mynd: Eyjafréttir/ÓPF

Á morgun, sunnudaginn 1. nóvember verður sunnudagaskóli í Landakirkju kl. 11.00. Engin messa verður kl. 13.00, en um kvöldið, kl. 20.00, verður allraheilagramessa þar sem látinna ástvina og samferðafólks verður minnst í þakklæti.

Í tilkynningu frá Landakirkju kemur fram að sérstaklega verði minnst þeirra sem látist hafa hér í Eyjum og/eða verið jarðsett í kirkjugarði Vestmannaeyja síðastliðna tólf mánuði. Nöfn þeirra verða lesin upp og kveikt á kerti fyrir hvern og einn.

„Í allraheilagramessu minnumst við í þakklæti látinna ástvina og samferðafólks og kveikjum á kertum til að minnast þeirra sem voru ljós á vegi okkar í gegnum lífið,“ segir í tilkynningunni.

Allir eru velkomnir og eru aðstandendur þeirra sem látist hafa síðastliðna tólf mánuði sérstaklega boðnir velkomnir.

Kór Landakirkju syngur undir stjórn Kitty Kovács.

Nýjustu fréttir

Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Einstæð móðir vann rúmar 45 milljónir í Lottó
Bókakynningu Steinunnar frestað til sunnudags
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.