Baráttusigur ÍBV kvenna

Í kvöld tóku Eyjastúlkur á móti nágrönnum sínum frá Selfossi í leik í Pepsideildinni. Selfoss stúlkur byrjuðu leikinn betur en þær misstu heldur dampinn við mark ÍBV á 39. Mínútu. En mark Eyjakvenna skoraði Sigríður Lára Garðarsdóttir með skalla eftir bakfallsspyrnu frá Shameeku Fishley. „Mér fannst við sterkari í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik settu þær mikla pressu á okkur […]
Dæmdur í fangelsi fyrir ítrekuð brot

Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð brot í Vestmannaeyjum. Var hann meðal annars dæmdur fyrir líkamsárás gegn barni, hótanir, vopnaburð og umferðalagabrot. Gerði lögreglan upptæka öxi hjá manninum og sveðju. Segir í frétt frá Morgunblaðinu. Maðurinn játaði brot sín skýlaust eins og þau voru sett fram í ákæru […]
ÍBV semur við markmann frá Króatíu

ÍBV í handbolta karla hefur samið við markmann frá Króatíu. Dino Spiranec er fæddur 1990 og hefur leikið með TSG Münster í Þýskalandi undanfarin ár. Hann kemur til Eyja strax eftir þjóðhátíð og hefur æfingar með liðinu. (meira…)
Misskilningur í gangi

ÍBV sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þess efnis að misskilningur væri meðal fólks í tengslum við greiðslur fyrir úthlutun á tjaldsvæðinu fyrir hvítu tjöldin fyrir Þjóðhátíðina. „Sá misskilingur er í gangi að það sé verið að taka út af kortunum ykkar fyrir lóðunum í dalnum. Þetta er þannig að þið fáið skilaboð í […]
Glæsilegur árangur hjá Clöru með U-16

Clara Sigurðardóttir tók þátt í Norðurlandamótinu með U-16 landsliðinu í fótbolta sem haldið var í Hamar, Noregi. Stelpurnar unnu tvo sigra á móti Þýskalandi og Englandi en töpuðu á móti Svíþjóð í riðlakeppninni sem tryggði þeim leik um 3. sætið í mótinu á móti Hollandi. Sá leikur endaði í markalausu jafntefli og þurfti því að grípa til […]
Ekki hægt að taka þessu lífi sem sjálfsögðum hlut

Fyrstu kosningar til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum voru haldnar árið 1919. Núna, 99 árum seinna er fyrsta konan að setjast í bæjarstjórastólinn. Ég mælti mér mót við nýjan Bæjarstjóra í huggulegu horni við höfnina til þess að fara aðeins yfir málin og verkefnin sem framundan eru. Íris Róbertsdóttir var ráðin bæjarstjóri Vestmannaeyja í síðustu viku og eru […]
Sandra meðal markahæstu leikmanna mótsins

Eins og við sögðum frá í gær er íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, komið áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramótsins sem nú fer fram í Debrecen í Ungverjalandi. Þar er okkar fulltrúi, Sandra Erlingsdóttir aldeilis að gera gott mót. En hún er í 5. Sæti yfir þær markahæstu í riðlakeppninni með […]