Dæmdur í fang­elsi fyrir ít­rekuð brot
Héraðsdómur Suðurlands
Héraðsdómur Suðurlands. Mynd tekin af mbl.is

Karl­maður var í síðustu viku dæmd­ur í 90 daga skil­orðsbundið fang­elsi fyr­ir ít­rekuð brot í Vest­manna­eyj­um. Var hann meðal ann­ars dæmd­ur fyr­ir lík­ams­árás gegn barni, hót­an­ir, vopna­b­urð og um­ferðalaga­brot. Gerði lög­regl­an upp­tæka öxi hjá mann­in­um og sveðju. Segir í frétt frá Morgunblaðinu.

Maður­inn játaði brot sín ský­laust eins og þau voru sett fram í ákæru máls­ins. Þar seg­ir meðal ann­ars að hann hafi í janú­ar í fyrra veist að dreng og ýtt hon­um upp að flagg­stöng og tekið um háls hans. Þá veitti hann drengn­um eft­ir­för og skellti hon­um í rúðu í úti­dyra­h­urð versl­un­ar þannig að dreng­ur­inn fékk punkt­blæðingu og eymsli.

Þá var maður­inn einnig fund­inn sek­ur um að hafa ógnað og hótað að drepa ann­an mann og var þá vopnaður stórri heima­til­bú­inni sveðju. Þegar lög­regla gerði leit á heim­ili manns­ins sama dag fannst sveðjan og öxi sem voru gerð upp­tæk.

Þá var maður­inn fund­inn sek­ur um fjölda um­ferðalaga­brota, allt frá því aka gegn akst­urs­stefnu og yfir í að nota ekki ör­ygg­is­belti eða nota farsíma án hand­frjáls búnaðar.

Morgunblaðið greindi frá.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.