Glæsilegur árangur hjá Clöru með U-16

Clara Sigurðardóttir tók þátt í Norðurlandamótinu með U-16 landsliðinu í fótbolta sem haldið var í Hamar, Noregi. Stelpurnar unnu tvo sigra á móti Þýskalandi og Englandi en töpuðu á móti Svíþjóð í riðlakeppninni sem tryggði þeim leik um 3. sætið í mótinu á móti Hollandi. Sá leikur endaði í markalausu jafntefli og þurfti því að grípa til vítuspyrnukeppni. Clara tók fyrstu spyrnuna og skoraði af öryggi, Ísland vann að lokum 4-3 og tryggði sér 3. sætið.

Þess má geta að Clara var valin maður leiksins í leiknum á móti Englandi en þann leik og leikinn á móti Svíþjóð spilaði hún sem fyrirliði. Glæsilegur árangur hjá Clöru.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.