Nýr Herjólfur siglir 30. mars

Stefnt er að því að hefja reglulegar siglingar á nýrri Vestmannaeyjaferju, nýjum Herjólfi frá Landeyjahöfn þann 30. mars á næsta ári. Þangað til mun núverandi Herjólfur sigla milli lands og Eyja. Nýja ferjan, er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Crist S.A. í Gdansk í Póllandi. Afhending hefur dregist meðal annars vegna breytinga á búnaði skipsins en […]
Vill engar þyrlur og takmarkaða bílaumferð

Um helgina kom fram í frétt að eignarhaldsfélagið Stórhöfði- Vestmannaeyjar standi fyrir endurbyggingu á íbúðarhúsinu við Stórhöfða sem var byggt árið 1906. Þá hefur lendingarpallur verið settur upp á svæðinu þar sem þyrlur hafa lent. Árni Sigurðsson veðurfræðingur á Veðurstofunni sinnir efnavöktun á Stórhöfða þar sem gróðurhúsaloftegundir og þrávirk lífræn efni eru mæld og hafa verið […]
Samstarfið milli ÍBV og N1 hefur verið með eindæmum farsælt

N1 er á nýjan leik aðalstyrktaraðili ÍBV í handbolta til næstu tveggja ára. N1 hefur stutt ríkulega við handboltann undanfarin 4 ár og hefur félagið náð einstökum árangri á þeim tíma. Samstarfið milli ÍBV og N1 hefur verið með eindæmum farsælt og styður þessi samningur vel við áherslur N1 um uppbyggingu á íþróttastarfi til framtíðar […]
Ian Jeffs hættur með kvennalið ÍBV

Ian Jeffs er hættur sem þjálfari kvennaliðs ÍBV en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net. Samningur Jeffs er að enda og hann ætlar ekki að framlengja hann. Jeffs hefur þjálfað ÍBV undanfarin fjögur tímabil en í ár endaði liðið í 5. sæti í Pepsi-deildinni. Í fyrra varð ÍBV bikarmeistari undir stjórn Jeffs en liðið […]