Vill engar þyrlur og takmarkaða bílaumferð

Um helgina kom fram í frétt að eignarhaldsfélagið Stórhöfði- Vestmannaeyjar standi fyrir endurbyggingu á íbúðarhúsinu við Stórhöfða sem var byggt árið 1906. Þá hefur lendingarpallur verið settur upp á svæðinu þar sem þyrlur hafa lent. Árni Sigurðsson veðurfræðingur á Veðurstofunni sinnir efnavöktun á Stórhöfða þar sem gróðurhúsaloftegundir og þrávirk lífræn efni eru mæld og hafa verið mæld síðan 1990. Hann sagði í samtali við Vísi að það kæmi honum á óvart að þyrlur fái að lenda á Stórhöfða. Íslendingar hafi skuldbundið sig á alþjóðavísu til að mæla mengun á staðnum.

„Það eru í gangi alþjóðlegir samningar um takmörkun á ýmsum þrávirkum lífrænum efnum og gróðurhúsaloftegundum. Um er að ræða efni eins og DDT, PCB og mörg fleiri. Slík efni eru fituleysanleg og geta borist í lífverur. Veðurstofan hefur frá árinu 1990 séð um að mæla þessi efni á Stórhöfða í Vestmannaeyjum enda um eitt hreinasta svæði í heiminum og því afar eftirsóknarvert að vakta svæðið. Rannsóknir ganga meðal annars út á að kanna hvort að þessi efni fari minnkandi í andrúmslofti. Stórhöfði endurspeglar hvernig ástandið er í Atlandshafi. Þetta svæði ásamt svipuðum stað á Haítí er svo notað í samanburði við aðra staði í heiminum þar sem mengun mælist mun meiri,“ segir Árni.

 

Mengun sem getur spillt sýnunum
Árni segir að helst eigi engin þyrla að lenda á svæðinu. „Það kemur mengun frá þyrlum sem getur spillt sýnunum sem við söfnum. Það eru þungmálmar bæði í eldsneyti og útblæstri véla sem geta komið fram í sýnum okkar. Það er einnig mikilvægt að takmarka alla bílaumferð á staðnum því þeir geta spillt svæðinu á sama hátt. Það var alltaf lokað með hliði við svæðið en ég veit ekki hvernig það er núna þegar framkvæmdir eru í gangi,“ segir Árni að lokum.

Sveitarfélagið bannar þyrlum að lenda utan flugvallar
Í aðalskipulagi Vestmannaeyja fyrir 2015-2035 kemur fram á bls. 96 að hafa á samstarf við Samgöngustofu um takmörkun á umferð um loftrými Vestmannaeyja þar sem sjónarmið sveitarfélagsins er að ekki verði heimilt að lenda þyrlum utan flugvallarins vegna ferðaþjónustu. Sigurður Smári Benónýsson skipulags- og byggingarfulltrúi kannast ekki við umsókn um lendingarpall á Stórhöfða,

Nýjustu fréttir

Andri Erlingsson markahæstur í fyrsta leik á EM u-20
Alexander Örn – Litlu atriðin skipta mestu máli
Sigurður Andrason – Stóð upp úr að vera valinn í Landsliðið
Tóku flugið í Eldheimum og hrifu tónleikagesti
Goslokahátíð náði hápunkti á laugardeginum
Lúkas Goði – Stefnan tekin á atvinnumennsku
Alexandra Ósk – Þetta líður miklu hraðar en þú heldur
Vilja að hafinn verði undirbúningur að smíði nýrrar ferju
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.