Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
„2,5% yfir línuna,“ segir framkvæmdastjóri Herjólfs :: Fyrirhuguð hækkun nær einnig til íbúafargjalda og er háð samþykki Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar
Mynd/TMS
Herjólfur í Vestmannaeyjahöfn. Fyrirhuguð 2,5% hækkun um áramót nær til allra fargjalda, þar á meðal íbúafargjalda. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Eyjafrétta að sama prósentuhækkun sé fyrirhuguð á almennum fargjöldum og fargjöldum fólks með lögheimili í Vestmannaeyjum. Um síðustu áramót var afsláttur íbúa aukinn svo fargjöld þeirra héldust óbreytt þótt almenna gjaldskráin hækkaði.

Almenn gjaldskrá hækkaði tvisvar á árinu

Almenn gjaldskrá Herjólfs hækkaði um 4% í upphafi árs 2026 og aftur um 4% um mitt ár. Ólafur segir síðari hækkunina hafa verið nauðsynlega vegna kostnaðar og tekjutaps á fyrri hluta ársins.

Ólafur segir Herjólf miða fyrirhugaða hækkun við það 2,5% viðmið sem sveitarfélög hafa lagt áherslu á til að sporna gegn verðbólgu. Vestmannaeyjabær á félagið og skipar stjórn þess en hefur, að sögn Ólafs, ekki bein afskipti af daglegum rekstri. Hann segir stefnu bæjarins frá upphafi hafa verið að bjóða eins hagstæð fargjöld og unnt er og tryggja góða þjónustu.

„Það er skýr stefna Herjólfs ohf. að halda fargjöldum eins lágum og mögulegt er, samhliða því að tryggja öruggan og traustan rekstur félagsins,“ segir Ólafur.

Ríkisframlög rúmlega 37% af tekjum

Svigrúm Herjólfs til að takmarka frekari hækkanir árið 2027 ræðst meðal annars af niðurstöðu yfirstandandi samningaviðræðna um framlög ríkisins til rekstursins. Framlögin námu rúmlega 37% af heildartekjum félagsins árið 2025.

Að sögn Ólafs hefur Vegagerðinni verið gert að draga úr útgjöldum í þeim málaflokki sem ferjusiglingar heyra undir. Hann segir Herjólf þegar hafa gripið til umtalsverðrar hagræðingar á krefjandi rekstrarári og að svigrúm til frekari hagræðingar sé takmarkað.

„Það verður að segjast eins og er að lækki framlög ríkisins mun það, að óbreyttum öðrum forsendum, óhjákvæmilega auka þrýsting á gjaldskrá félagsins,“ segir Ólafur.

Hann segist þó bjartsýnn á niðurstöðu viðræðnanna og segir viðsemjendur hafa sýnt sérstöðu Herjólfs og mikilvægi siglinganna fyrir samfélagið í Vestmannaeyjum skilning. Endanleg ákvörðun um gjaldskrána verður tekin þegar nauðsynleg samþykki og forsendur liggja fyrir.

Nýjustu fréttir

Herjólfur miðar við 2,5% hækkun um áramót
Já, nei, já
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Ellert Scheving segir upp hjá ÍBV
Stefna að því að hámarksbið eftir greiningu verði 12–18 mánuðir
Er samveran komin á verkefnalistann fyrir jólin?
Fórnarlamba umferðarslysa minnst í Eyjum – myndir
Vara við áhrifum útflutningstakmarkana á kjör sjómanna
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.