Nýr Herjólfur siglir 30. mars

Stefnt er að því að hefja reglulegar siglingar á nýrri  Vestmannaeyjaferju, nýjum Herjólfi frá Landeyjahöfn þann 30. mars á næsta ári. Þangað til mun núverandi Herjólfur sigla milli lands og Eyja.

Nýja ferjan, er í smíðum hjá skipasmíðastöðinni Crist S.A. í Gdansk í Póllandi. Afhending hefur dregist meðal annars vegna breytinga á búnaði skipsins en einnig hafa orðið tafir hjá skipasmíðastöðinni.  Ekki er ljóst á þessu tímapunkti hver nákvæmur afhendingartími verður en á þessari stundu er miðað við að það verði öðruhvoru megin við áramótin. Hvorki rekstaraðilum né yfirvöldum hugnast vel að hefja rekstur á nýju og breyttu skipi um háveturinn og því er þessi tími valinn í lok mars. Tíminn frá afhendingu og þar til rekstur hefst verður notaður til prófana á sjólagi skipsins og til þjálfunar á áhöfn, en búnaður skipsins er talsvert breyttur frá gamla Herjólfi.

Nýi Herjólfur hefur búnað sem gerir kleift að knýja skipið alfarið með raforku og er það í fyrsta sinn sem slík tækni er tekin til notkunar hér á landi. Með því móti er leitast við að leggja grunn að umhverfisvænum rekstri á nýju ferjunni og samgöngum við Vestmannaeyjar.

Núverandi Herjólfur mun sinna flutningum með sama hætti og verið hefur þar til ný ferja verður tekin í notkun og mun Eimskip reka ferjuna með óbreyttu sniði.

Með nýjum Herjólfi er reiknað með að frátafir í Landeyjahöfn minnki til muna sem mun auðvelda Vestmannaeyingum ferðalög upp á land en ekki síður auka möguleika ferðaþjónustunnar í  Eyjum. Vonir standa til þess að með nýja skipinu lengist ferðamannatímabilið í kjölfar þess að siglingar í Landeyjahöfn verða stöðugri.  Það hefur sýnt sig að ferðamenn ferðast nær eingöngu í gegnum Landeyjahöfn á leið sinni til Vestmannaeyja.  Það er því ljóst að með nýju skipi hefst nýr og áhugaverður kafli í samgöngusögu Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.