Heilbrigðisráðuneytið samþykkti beiðni bæjarins

Á fundi fjölskyldu og tómstundaráðs í gær var tekið fyrir staðan á Hraunbúðum. Þar kom fram að Heilbrigðisráðuneytið hefur samþykkt beiðni um breytingu rekstrarheimilda dvalarrýma í hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. Þörfum fyrir hjúkrunarrými hefur aukist í Vestmannaeyjum en minnkað fyrir dvalarrými. Tilkoma nýrra þjónustuíbúða á vegum Vestmannaeyjabæjar mun mæta þessum breytingum sem og efling heimaþjónustu. […]

Núna bíðum við eftir makrílnum

Alls er búið að landa 185 þúsund tonn­um af kol­munna frá ára­mót­um, sam­kvæmt yf­ir­liti á vef Fiski­stofu, en heim­ild­ir árs­ins eru alls um 267 þúsund tonn. Ísfélagið og Vinnslustöðin eru búin að veiða sinn kolmuna og bíða nú eftir makrílnum. Eyþór Harðason hjá Ísfélaginu sagði að Sigurður væri á heimleið. „Sigurður kemur í kvöld með […]

Mistök í póstsendingu skýra dræma þátttöku í skimun

Einungis hluti þeirra kvenna sem komið var að í skimun fengu bréfið sent. Vegna þessa verða ný boðsbréf send þeim konum sem ekki fengu, og aftur verður boðið upp á brjóstamyndatöku í Vestmannaeyjum seinni hluta ágústmánaðar. „Þessi dræma þátttaka var svo úr takt við það sem við höfum verið að upplifa undanfarið, að það hlaut […]

Samningur um þorskveiðar í rússneska hluta Barentshafsins

Dagana 7.-8. maí sl. var haldinn fundur í Moskvu í fiskveiðinefnd Íslands og Rússlands um fiskveiðisamning fyrir árið 2019, svokallaðan „Smugusamning“ sem í þessu tilviki snýst um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins. Samningar tókust milli þjóðanna. Samningurinn felur í sér að íslensk fiskiskip gefa veitt 6.592 tonn af þorski í rússneska hluta Barentshafsins 2019 […]

Opin ráðstefna um almannavarnir og skipulag

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga, lögreglustjórinn á Suðurlandi og lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum í samstarfi við Skipulagsstofnun standa að ráðstefnu um almannavarnir og skipulag sem fram fer á Hótel Selfossi þann 17. maí nk. kl 9:00 – 15.00. Ráðstefnan er afurð íbúafunda sem haldnir voru s.l. haust í tengslum við umhverfis- og auðlindamál á Suðurlandi. Íbúar kölluðu eftir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.