Samningur um þorskveiðar í rússneska hluta Barentshafsins

Dagana 7.-8. maí sl. var haldinn fundur í Moskvu í fiskveiðinefnd Íslands og Rússlands um fiskveiðisamning fyrir árið 2019, svokallaðan „Smugusamning“ sem í þessu tilviki snýst um þorskveiðar Íslands í rússneska hluta Barentshafsins.

Samningar tókust milli þjóðanna. Samningurinn felur í sér að íslensk fiskiskip gefa veitt 6.592 tonn af þorski í rússneska hluta Barentshafsins 2019 auk allt að 1.978 tonna af öðrum tegundum, en þar af getur þó ýsuafli aldrei orðið meiri en 521 tonn. Jafnframt var samið um svokallaðan sölukvóta sem er um það bil þriðjungur af því magni sem nefnt var hér að framan.

Á móti fá rússnesk fiskiskip 1.500 tonn af makríl og 2.000 tonn af kolmunna frá Íslandi sem þau geta veitt á alþjóðlegu hafsvæði. Þessar aflaheimildir eru teknar af þeim heildarafla sem Ísland hefur ákveðið í þessum tveimur fisktegundum.

Formaður íslensku samninganefndarinnar var Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, en formaður rússnesku sendinefndarinnar var S. Simakov, yfirmaður alþjóðamála hjá Sjávarútvegsstofnun Rússlands (Federal Russian Fisheries Agency).

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.