Herjólfshátíð á laugardaginn

Laugardaginn 15. júní nk., mun samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson afhenda Vestmannaeyingum nýja ferju fyrir samgöngur milli lands og Eyja. Af því tilefni verður efnt til formlegrar móttökuathafnar í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum. Athöfnin hefst kl. 14:15 með ræðum samgönguráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar, formanni bæjarráðs og fulltrúa Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs. Prestur Landakirkju mun blessa skipið og forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir […]
Betra heima setið

Frumvarp til laga um starfsumhverfi fiskeldis er nú til annarrar umræðu á Alþingi. Fram kom í ræðu framsögumanns atvinnuveganefndar á Alþingi að mikil eindrægni hefði verið í nefndinni um málið og tekist hefði að sætta þar ýmis sjónarmið. Þótt sögð hafi verið samstaða í nefndinni, eru það þó fyrirtækin í landinu sem þurfa að fylgja […]
Lagt til að Cloé öðlist íslenskan ríkisborgararétt

Allsherjar- og menntamálanefnd alþingis leggur til að kanadíska knattspyrnukonan Cloé Lacasse, sem er að spila sína fimmtu leiktíð með ÍBV, öðlist íslenskan ríkisborgararétt. Vonir standa til að alþingi samþykki tillögu allsherjar-og menntamálanefndar fyrir þinglok og verði sú raunin verður Cloé Lacasse gjaldgeng í íslenska landsliðið. Cloé er 25 ára gömul og er annar markahæsti leikmaður […]
Forseti Íslands og Þýskalands heimsækja Vestmannaeyjar í dag

Forseti Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier og Elke Büdenbender forsetafrú, forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, forsetafrú, ásamt fylgdarliði, koma í heimsókn til Vestmannaeyja síðar í dag. Um er að ræða hluta af opinberri heimsókn þýska forsetans til Íslands. Forsetahjónin munu m.a. heimsækja sjóvarmadælustöðina, Breka VE-61, koma við á TM móti stúlkna í knattspyrnu og […]
Arnór í lokahóp U-17

Guðmundur Helgi Pálsson og Maksim Akbachev, þjálfarar U-17 ára landsliðs karla hafa valið 16 leikmenn fyrir verkefni sumarsins. Auk þess eru 4 leikmenn valdir til vara. Liðið tekur þátt í tveimur mótum í sumar, Opna Evrópumótinu sem fer fram í Gautaborg í Svíþjóð 1. – 5. júlí og Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fer fram í Baku […]
Andlát: Mary Kristín Coiner

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARY KRISTÍN COINER lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum 4. júní.Útför hennar fer fram frá Landakirkju 29. júní klukkan 14. Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir góða umönnun og hlýju. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimerfélag Vestmannaeyja. […]