Pedro Hipolito hættir sem þjálfari ÍBV

Knattspyrnuráð ÌBV og Pedro Hipolito hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi. ÍBV þakkar Pedro fyrir það það mikla og óeingjarna starf sem hann lagði á sig og òskar honum velfarnaðar ì framtíðinni. Fyrst um sinn mun Ian Jeffs taka yfir þjálfun meistaraflokks ÌBV, segir í tilkynnngu frá ÍBV. (meira…)

Einræðisleg skipun stjórnar Herjólfs ohf.  

Baráttan um bættar samgöngur hefur verið og mun líklega áfram verða eitt af megin verkefnum bæjastjórnar Vestmannaeyja enda eitt stærsta hagsmunamál Eyjamanna. Ferðaþjónustan, sjávarútvegurinn, verslun og þjónusta og íbúar eiga allt undir því að samgöngur séu í lagi allt árið um kring. Þó svo að stórum áföngum hafi verið náð þá er þessari baráttu hvergi […]

Fyrsta brotið úr Þjóðhátíðarmyndinni – Fólkið í Dalnum

Heimildarmyndin Fólkið í Dalnum er nú í eftirvinnslu og verður frumsýnd á næstu vikum í kvikmyndahúsum í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Þetta fyrsta brot úr myndinni sem birt er opinberlega er úr kafla um setningu Þjóðhátíðar Vestmannaeyja sem er Eyjamönnum kær hátíðarstund. Fólkið í Dalnum er mynd eftir Sighvat Jónsson og Skapta Örn Ólafsson og verður […]

Frítt á völlinn í dag

Í dag tekur ÍBV á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli klukkan 16:00. Strákarnir okkar eru á botninum í Pepsi-max deildinni og þurfa á stuðning okkar að halda. Frítt er á völlinn í boði velunnara og einnig verður grill og fjör fyrir leikinn. Áfram ÍBV! (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.