Tíu staðfest COVID-19 tilfelli

Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu: Síðustu daga hafa komið upp 10 staðfest COVID-19 tilfelli í Vestmannaeyjum. Tilfellin eru ekki öll með augljósa tengingu innbyrðis, þ.e.a.s. ekki hafa verið náin samskipti á milli manna í öllum tilvikum. Það eina sem virðist að svo komnu máli tengja öll tilfellin saman eru íþróttakappleikir […]
Tímabundin lokun Íþróttamiðstöðvar

Starfsmaður Íþróttamiðstöðvar hefur greinst með kórónuveirusýkingu en viðkomandi hefur ekki verið við störf undanfarna daga. Í samráði við umdæmislækni sóttvarna, aðgerðastjórn og rakningarteymi hefur þó verið tekin ákvörðun um að loka Íþróttamiðstöðinni á meðan málið er skoðað nánar. Þetta er gert í því skyni að hindra mögulega útbreiðslu smits. Starfsfólk fer í úrvinnslukví á meðan […]
Börn að leik

Fjöldi barna með veiðistangir hefur verið áberandi á og við Nausthamarsbryggjuna undan farna daga. Trillu sjómaður sem Eyjafréttir ræddi við sagðist ekki hafa séð svona mikið af krökkum á bryggjunum í mörg ár og þetta minnti hann á fyrri tíð þegar bryggjan var aðal leikvöllurinn. „Þetta er bara skemmtilegt á meðan þau fara varlega og […]
Allt sprittað á klukkustunda fresti og lyft í hönskum

Í gær bárust fréttir af því af höfuðborgarsvæðinu að sundlaugarstarfsmenn þyrftu stöðugt að vera að rífast við fólk sem neitaði að hlýða reglum um hversu margir mættu vera í heitu pottunum og annarsstaðar á sundlaugasvæðinu. Við heyrðum í Grétari Eyþórssyni forstöðumanni íþróttamiðstöðvarinnar í Vestmannaeyjum og spurðum hvernig hefði gengið þessa fyrstu daga við breyttar aðstæður. […]
Andlát: Þórey Inga Jónsdóttir

Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,ÞÓREY INGA JÓNSDÓTTIRHásteinsvegi 62, Vestmannaeyjum,lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum þann 5. mars.Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð. Einnig þökkum við sérstaklega starfsfólki HSU Vestmannaeyjum fyrir einstaka umönnun í veikindum hennar.Jón Ben Ástþórsson, Anna Kristín Hjálmarsdóttir,Jón Sigurðsson,Þórey Gísladóttir, […]
Hvað má í sóttkví?

Nú þegar þeim fjölgar ört sem settir eru í sóttkví í Vestmannaeyjum og í gærkvöldu voru þeir orðnir rúmlega 100. Ekki er víst að allir átti sig á hvað það þýðir að vera í sóttkví. Hvað má og hvað má ekki. Hér að neðan má lesa nokkra góða punkta um það. Sóttkví á heimilum Oftast […]
Áhrifa samkomubanns gætir víða í Eyjum

Nýtt tölublað Eyjafrétta verður borið út til áskrifenda í dag en er nú þegar aðgengilegt á netinu. Áhrif samkomubann vegna útbreiðslu Covid-19 hefur víðtæk áhrif í samfélaginu í Vestmannaeyjum. Farið er yfir þau helstu í blaðinu í dag. Spjallað er við Soffíu Valdimarsdóttur, sjálfboðaliða hjá Rauða krossinum í Eyjum. Thelma Gunnarsdóttir, yfirsálfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, […]