Sóttkví á heimilum
Oftast er fólk í sóttkví á heimili sínu þá þarf að huga að ýmsu. Ef fleiri búa á heimilinu þarf að skipuleggja hlutina vel. Sá sem er í sóttkví þarf að:
- Takmarka umgengni við aðra heimilismenn eins og mögulega er hægt.
- Hafa alltaf 2 metra í næsta mann.
- Heimilismenn sem ekki eru í sóttkví gætu mögulega fengið að dvelja hjá vinum eða vandamönnum á meðan sóttkvíin gildir.
- Ef fleiri en einn eru í sóttkví á sama heimili sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta þeir verið saman í sóttkví.
- Dvelja mest í einu herbergi íbúðar ef fleiri eru á heimilinu sem ekki eru í sóttkví.
- Snerta sem allra minnst aðra staði í íbúðinni. Sótthreinsa þarf alla sameiginlega snertifleti eftir að sá sem sætir sóttkví hefur snert þá.
- Ef tvö salerni eru í íbúðinni er gott að sá í sóttkví noti annað og hinir hitt salernið.
- Ef aðeins eitt salerni er í íbúðinn þarf að sótthreinsa alla snertifleti á því eftir að sá í sóttkví hefur notað það.
- Gæta sérstakrar varúðar þegar hann fer úr herberginu og gæta þess að hafa alltaf 2 metra á milli sín og annarra
- Gæta vel að handhreinsun, sér í lagi þegar sameiginleg rýni íbúðar eru notuð eða óhjákvæmilegt er að hafa samskipti við aðra
- Mæla líkamshita sinn daglega og skrá.
- Ef einkenni gera vart við sig þarf að hafa samband við heilsugæsluna næsta virka dag og láta vita. Það má gera á mínum síðum Heilsuveru. Mikilvægt er að geta um sóttkvína.
Ungt barn í sóttkví
Ef ungt barn er sett í sóttkví þarf sá fullorðni einstaklingur sem annast barnið að vera í sóttkví með því. Það gildir þá það sama um þann einstakling og aðra sem þurfa að sæta sóttkví. Barnið og umönnunaraðili þess geta þá deildt herbergi en ekki með öðrum í fjölskyldunni.
Einstaklingur í sóttkví má EKKI
- Fara út af heimili nema brýna nauðsyn beri til, s.s. til að sækja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Við slíkar aðstæður skal hafa samband við heilsugæslu, Læknavakt í síma 1700 utan opnunartíma heilsugæslunnar eða við 112 í neyð og taka í öllum tilvikum fram að sóttkví sé í gildi.
- Nota almenningssamgöngur eða leigubíla. Sjá leiðbeiningar um ferðir innanlands í sóttkví.
- Fara til vinnu eða skóla þar sem aðrir eru.
- Fara á mannamót, hvort sem þau varða starf hans, fjölskyldu eða félagslíf.
- Fara á líkamsræktarstöðvar, sundlaugar, í leikhús, kvikmyndahús, verslunarmiðstöðvar eða aðra staði þar sem margir koma saman.
- Fara sjálfir eftir aðföngum, þ. á m. í apótek, matvöruverslun, pósthús, banka eða annað.
- Dvelja í sameiginlegum rýmum fjölbýlishúsa, s.s. stigagöngum, þvottahúsum eða sameiginlegum görðum/útivistarsvæðum. Ef farið er út er best að nota hanska á hendur og snerta sem minnst alla fleti.
- Taka á móti gestum á heimili sínu meðan sóttkví stendur yfir.
Einstaklingur í sóttkví MÁ
- Fara út á svalir eða í garð við heimilið. Ef aðrir eru þar líka þarf sá sem er í sóttkví að halda sig í a.m.k. 2 m fjarlægð.
- Fara í gönguferðir en þarf að halda sig í a.m.k. 2 m fjarlægð frá öðrum vegfarendum.
- Fara í bíltúr á einkabíl en ekki má eiga samskipti við aðra í návígi s.s. við bílalúgur veitingastaða.
- Fara út með heimilissorp en huga þarf vel að hreinlæti, sinna handhreinsun fyrir og eftir opnun sorprennu/ruslatunnu/ruslageymslu og gjarnan strjúka yfir handföng með 70% spritti eða öðru sótthreinsandi efni eftir snertingu.
Hvar er hjálp að fá?
- Rauði krossinn getur aðstoðað við aðföng ef þörf er á
- Netspjallið á heilsuvera.is getur svarað spurningum ef eitthvað er óljóst
- Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er gjaldfrjálst númer opið öllum á Íslandi sem á þurfa að halda.