Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu:
Síðustu daga hafa komið upp 10 staðfest COVID-19 tilfelli í Vestmannaeyjum. Tilfellin eru ekki öll með augljósa tengingu innbyrðis, þ.e.a.s. ekki hafa verið náin samskipti á milli manna í öllum tilvikum. Það eina sem virðist að svo komnu máli tengja öll tilfellin saman eru íþróttakappleikir á höfuðborgarsvæðinu- sem einstaklingarnir eða fólk þeim tengt sótti sem áhorfendur og/eða leikmenn. Það hefur þó ekki verið staðfest og alls ekki hægt að fullyrða neitt að svo komnu máli. Þrjú ný tilfelli bættust við í dag og er um að ræða einstaklinga sem tengjast fyrri staðfestum tilfellum. Eitt þeirra tengist Íþróttamiðstöðinni og því hefur verið tekin sú ákvörðun að loka henni tímabundið á meðan málið er skoðað nánar.
Sýking af völdum veirunnar er alla jafna ekki alvarleg og flestir sem sýkjast fá væg eða nánast engin einkenni. Hins vegar geta komið fram alvarleg veikindi hjá öldruðum og ákveðnum áhættuhópum. Ekkert viðnám er í samfélaginu þar sem um nýja veiru er að ræða. Mikilvægt er að gera ráðstafanir til að fyrirbyggja eftir megni að smit berist til áhættuhópa og sömuleiðis er afar mikilvægt að hægja á útbreiðslu þannig að ekki séu mjög margir veikir á sama tíma. Þess vegna er brýnt að greina tilfelli fljótt og eins þá sem hafa verið útsettir og stöðva smitleiðir.
Um hundrað manns hafa þurft að fara í sóttkví í kringum þessi 10 staðfestu tilfelli og auk þess er talsverður fjöldi fólks í sóttkví vegna dvalar á áhættusvæðum. Loka hefur þurft leikskólanum Sóla tímabundið og í gærkvöldi var ákveðið að 7. bekkir Grunnskóla Vestmannaeyja væru heima í dag. Ástæðan fyrir því var að nemendur þar tengjast tilfellum og auk þess hefur verið óvenju mikið um veikindi í þessum árgangi. Sýni voru tekin frá öllum nemendum sem eru með einkenni og niðurstöður sýna sem tekin voru í gær eru neikvæðar. Sýni voru tekin hjá öðrum nemendum með einkenni í árgangnum í dag og er niðurstöðum þeirra að vænta í kvöld og á morgun.
Um þessar mundir eru mjög sérstakar aðstæður hér á landi og í öllum heiminum vegna COVID-19 faraldursins. Víðtækar sóttvarnaráðstafanir eru í gangi sem hafa það að markmiði að hefta útbreiðslu, draga úr smiti í áhættuhópum og síðast en ekki síst að hindra að mjög margir verði veikir á sama tíma. Vestmannaeyjar sem samfélag hefur brugðist vel við yfirvofandi faraldri og ráðstafanir í Eyjum hafa verið síst umfangsminni en annars staðar. Tilviljun getur hins vegar ráðið því hvar veiran stingur sér niður eins og dæmin sanna.
Á laugardag er fyrirhugað að halda opinn fund á netinu þar sem íbúum býðst að spyrja fulltrúa aðgerðastjórnar spurninga og fá svör í útsendingu. Fundurinn verður kynntur vel áður en af honum verður.
Aðgerðastjórn
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.