Þið eruð öll að standa ykkur gríðarlega vel við erfiðar aðstæður

Það er margt sem fer í gegnum hugann þegar hugsað er tilbaka og til síðustu fimm daga. Í tvo mánuði höfðum við undirbúið okkur undir útbreiðslu faraldurs sem hóf að breiða úr sér frá Kína í desember og mörgum þótti óraunverulegt. Svokallaða kórónaveiru sem síðar fékk sjúkdómsnafnið COVID-19 og hvert mannsbarn þekkir í dag. 15 […]
Fjöldi Eyjamanna í sóttkví kominn í 288

Aðgerðastjórn Vestmannaeyja sendi í kvöld frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að staðfest smit eru orðin 11 í Vestmannaeyjum og eru 282 í sóttkví. Nýjasta staðfesta smitið varðar kennara í Grunnskóla Vestmannaeyja og var ákveðið að setja nemendur í 1.-4. bekk og alla starfsmenn skólans í svokallaða úrvinnslukví á meðan málið er til skoðunar. […]
Ellefta tilfellið greint í Eyjum, kennari við Hamarsskóla smitaður

Kennari í Hamarsskóla hefur greinst með kórónaveirusýkingu en hann hefur ekki verið við kennslu undanfarna daga. Í varúðarskyni hefur þó verið tekin ákvörðun um að til sunnudags, nema annað verði ákveðið, fari starfsmenn og nemendur starfsstöðvarinnar í úrvinnslukví á meðan rakningarteymi vinnur úr upplýsingum. Í framhaldi verður haft samband við þá sem þurfa að fara […]
Allt íþróttastarf fellur niður

Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Hvað varðar íþróttastarf barna og ungmenna er eftirfarandi beint til íþróttahreyfingarinnar: „…að virtum þeim […]
Skipverjar á Hrafni Sveinbjarnarsyni ekki með COVID-19

Skipverjar sem prófaðir voru af togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni reyndust ekki vera sýktir af COVID-19. Þetta kemur fram á facebook síðu skipsins. (meira…)
HSÍ leitaði ráða hjá almannavörnum

Á upplýsingafundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag var útbreiðsla smita í Vestmannaeyjum og uppruni þeirra til umræðu. Talið barst að útslitaleik ÍBV og Stjörnunnar í Laugardalshöll 7. mars síðastliðinn. En tíðrætt hefur verið um að rekja megi flest smit í Vestmannaeyjum helgarinn umræddu. Víðir segir að HSÍ hafi verið í samskiptum við almannavarnir í aðdraganda bikarúrslitaleiksins. […]
Frekari sóttvarnarráðstafanir í Vestmannaeyjum hafa verið ræddar

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til reglulegs upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag. Þar var Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn spurður út í harðari aðgerðir á völdum stöðum þar voru nefnd til sögunnar Hvammstangi og Vestmannaeyjar. Víðir sagði að rætt hafi verið að grípa til harðari aðgerða bæði á þessum stöðum sem og á landinu öllu. Í nýjustu […]
Gary Martin kemst ekki til Íslands

Gary Martin, framherji ÍBV fær ekki að ferðast til Íslands frá London eins og staðan er í dag. Ástæðan eru hertar reglur í Bretlandi. Gary Martin hefur dvalið í heimalandi sínu síðustu mánuði en átti að koma til Vestmannaeyja í dag og hefja æfingar með ÍBV. Enska framherjanum var hins vegar ekki hleypt um borð […]
Létt yfir mannskapnum þrátt fyrir allt

Togarinn Hrafn Sveinbjarnarson GK-255 sem gerður er út af Þorbirni í Grindavík liggur nú við bryggju í Vestmannaeyjahöfn með 22 skipverja um borð í svo kallaðri biðkví. Brynjólfur Stefánsson stýrimaður á Hrafni segist í samtali við Eyjafréttir lítið vita um framhaldið hjá þeim. „Við vitum ekkert fyrr en í kvöld í fyrsta lagi það verða teknar […]
17 af 26 skipverjum á Hrafni Sveinbjarnarsyni veikir

Í gærkvöldi tilkynnti landhelgisgæslan lögreglu að von væri á fiskiskipi til Vestmannaeyja þar sem væru talsverð veikindi um borð. 17 menn af 26 höfðu verið veikir og þrír mikið veikir. Hafnarsvæðinu var lokað fyrir almenningi og fóru heilbrigðisstarfsmenn um borð þegar skipið hafði lagst að bryggju um ellefuleytið en forgangsmál var að sinna sjúklingunum. Fjórum […]