Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðaði til reglulegs upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag. Þar var Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn spurður út í harðari aðgerðir á völdum stöðum þar voru nefnd til sögunnar Hvammstangi og Vestmannaeyjar. Víðir sagði að rætt hafi verið að grípa til harðari aðgerða bæði á þessum stöðum sem og á landinu öllu.
Í nýjustu útgáfu af viðbragðsáætlun almannavarna vegna heimsfaraldurs frá 5. mars er að finna skilgreiningar og heimildir til að beita samkomubanni og takmörkunum á ferðafrelsi.
Ábyrgð á sóttvörnum er á hendi sóttvarnalæknis sem getur beitt ýmsum úrræðum en önnur krefjast aðkomu heilbrigðisráðherra. Þannig getur ráðherra að fenginni tillögu sóttvarnalæknis fyrirskipað skimun á landamærastöðvum, úrskurðað fólk í sóttkví eða afkvíun, gefið út fyrirskipun um samkomubann og afkvíun landsins í heild eða í sóttvarnasvæði innanlands. Sóttvarnalæknir getur beitt slíkum úrræðum til bráðabirgða en ekki án þess að upplýsa ráðherra um ráðstafanir sínar.
Sóttvarnarráðstafanir í samráði við ráðherra eru:
Fyrirmæli um samkomubann, lokun skóla og annarra samkomustaða.
Fækkun landamærastöðva þar sem sett verður upp sóttvarnaskimun.
Afkvíun alls landsins með lokun landamæra.
Afkvíun landshluta með lokun milli sóttvarnaumdæma.
Ákvörðun um að aflétta ofangreindum ráðstöfunum.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.