Það er margt sem fer í gegnum hugann þegar hugsað er tilbaka og til síðustu fimm daga. Í tvo mánuði höfðum við undirbúið okkur undir útbreiðslu faraldurs sem hóf að breiða úr sér frá Kína í desember og mörgum þótti óraunverulegt. Svokallaða kórónaveiru sem síðar fékk sjúkdómsnafnið COVID-19 og hvert mannsbarn þekkir í dag.
15 dögum eftir að veiran kom til Íslands rataði hún til Vestmannaeyja enda hvergi betra að vera. Á aðeins 5 dögum urðu tilfellin 11 í Vestmannaeyjum sem hefur kallað á öflugt viðbragð heimamanna. Nú erum við stödd í almannavarnaástandi með virkjaða aðgerðastjórn og alls kyns úrræði fyrir smitaða, fólk í sóttkví og fólk sem þarf aðstoð við daglegar athafnir. Allir vinna saman sem einn maður þar sem einblínt er á að hefta útbreiðslu veirunnar. Mikið hefur mætt á. Smit hefur komið upp hjá lögreglu, hjá heilbrigðisstofnuninni, hjá leikskóla, grunnskóla, íþróttahúsi en allar aðgerðir vegna þessa hafa verið fumlausar og unnar af yfirvegun. Aðgerðirnar snerta marga og eru sérstakar þó ekki sé kveðið sterkara að orði.
Það eru margir sem hafa þurft að skipta um gír, fara í önnur hlutverk og takast á við nýja hluti án nokkurs fyrirvara. Þið eruð öll að standa ykkur gríðarlega vel við erfiðar aðstæður. Höldum áfram að standa með hvert öðru og sýna virðingu og kærleika. Þetta ástand líður hjá.
Páley Borgþórsdóttir, aðgerðastjóri og lögreglustjóri Vestmannaeyja.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.